155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:26]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna og finnst hún þörf og góð. Það er auðvitað eðlilegt að umræðan hér sé með eitthvað öðrum hætti en á hinum Norðurlöndunum og annars staðar í Evrópu. En ég verð að segja að mér þykir samt ekki alveg eðlilegt hversu mikill stigsmunur er á umræðu hér og annars staðar í kringum okkur vegna þess að hin hliðin á þeim pening er þá að það þýðir að samfélagslegur viðbúnaður er því miður takmarkaður. Vonandi mun ekki reyna á hann samkvæmt einhverri verstu mögulegu sviðsmynd. En það sem er raunhæft og fræðilega mögulegt þurfum við með einhverjum hætti að geta hugsað til enda og haft á einhvers konar pólitískri dagskrá. Síðan er það allt það sem er þar á milli. Þróunin í löndunum í kringum okkur er sú að fólk er meira meðvitað, það eru nýjar og nýjar ákvarðanir teknar og atvikum sem eiga sér stað, í rauninni fjölþáttabrotum af hálfu Rússlands sérstaklega, fer fjölgandi. Það er ekki í einstaka löndum. Það er ekki eingöngu í Eystrasaltsríkjunum. Það er hægt að telja upp mjög mörg lönd í Evrópu hvað það varðar. Af hverju, ef ekkert breytist, ætti það ekki á einhverjum tímapunkti að skila sér í meira mæli til Íslands? Hvað myndi það þýða? Hins vegar, það kom nú bara niðurstaða um það í dag, er Ísland til að mynda hástökkvari á lista yfir lönd sem eru að gera gott mót í netöryggismálum. Það er mjög mikilvægt. Það skiptir máli bæði hvað stjórnvöld eru að gera og stofnanir en líka að við sem borgarar í þessu landi (Forseti hringir.) séum með þann samfélagslega viðbúnað að geta verið meðvituð um þetta og komið í veg fyrir brot, þannig að þetta skilar sér en bara svo miklu hægar en alls staðar í kringum okkur.