fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka ráðherra fyrir að eiga hér orðastað við mig varðandi þennan mikilvæga þátt. Við sjáum það líka að áherslan á fjölþáttaógnir og netöryggismál fer vaxandi eins og ráðherra nefndi. Þetta er í eðli sínu önnur áskorun, tel ég, vegna þess að þekking á óhefðbundnum ógnum er mjög takmörkuð. Ég nefni oft netöryggi vegna þess að það er eitthvað sem ég held að almenningur skilji betur. En það er svo margt annað; falsfréttir, ógn við lýðræði og innviði og svo má lengi telja. Ég held að við ráðherra séum sammála um að það skiptir miklu máli að halda áfram og sérstaklega er fagnaðarefni að við séum að taka þetta stökk. Ég leyfi mér að segja að það er fyrst og fremst stjórnvöldum að þakka og árvekni hvað þessa málaflokka varðar.