fjárlög 2025.
Herra forseti. Auðvitað bera stjórnvöld mikla ábyrgð og þess vegna skiptir máli að við höfum sérstaklega verið að huga að viðnámsþoli, aðgerðum gegn netógnum og fjölþáttaógnum. Það er líka á okkar ábyrgð, ásamt fjölmiðlum, fræðimönnum og hagsmunaaðilum í samfélaginu, að koma þessum veruleika og breyttu veröld frekar á framfæri vegna þess að annað er ósanngjarnt gagnvart fólki, að það hafi einhvern veginn ekki tíma til að melta þessa breyttu veröld og hvað hún þýðir. Það er á ábyrgð hvers ríkis að sinna þessu og mæta þessum ógnum og henni verður ekki útvistað til annarra þannig að Ísland og íslenskt samfélag verður að vera sjálfbært þegar kemur að vörnum á sviði fjölþáttaógna. Þeim er sannarlega að fjölga í löndunum í kringum okkur og hv. þingmaður nefnir sérstaklega falsfréttir og upplýsingaóreiðu sem er líka eitthvað sem við þurfum að vera vakandi fyrir vegna þess að henni er (Forseti hringir.) beitt með mjög markvissum hætti og mjög árangursríkum hætti alls staðar í kringum okkur og að sjálfsögðu líka hér.