155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:31]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér og mig langar að byrja á því að fara aðeins dýpra ofan í spurningu sem hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir spurði hér áðan. Það er nefnilega smámisræmi á bls. 356 og 357 í fjárlagafrumvarpinu þar sem verið er að tala um málefnasvið 35. Annars vegar er talað um á bls. 396, í a-lið, að framlög til málaflokksins hækki um 2,5 milljarða í tengslum við Úkraínu og að það geti talist til þróunarsamvinnu samkvæmt skilgreiningu þróunarsamvinnunefndar. Svo á síðunni á eftir, í c-lið, er fjallað um það að við séum að stefna að því að hækka upp í 0,37% árið 2025 en þar stendur að þetta muni nema um 0,37% að undanskildum framlögum til Úkraínu. Þetta er neðst á bls. 356 og efst á bls. 357. Þarna gætir ákveðins misræmis, annars vegar er verið að tala um að í rauninni sé hækkunin úr 0,35% upp í 0,37% vegna þessa aukastuðnings við Úkraínu og hins vegar að við séum að fara upp í 0,37% án þess að við tökum tillit til þessara 2,5 milljarða. Ég náttúrlega fagna því ef við erum að gera eins og stendur þarna í c-lið, að hækka upp í 0,37% að undanskildum stuðningnum við Úkraínu.