155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:33]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég hafði ekki áttað mig á þessu orðalagi í fjárlagafrumvarpinu vegna þess að það er rangt. Það er þannig að þegar við komumst upp í 0,37% af vergri landsframleiðslu í þróunarsamvinnu er það vegna þess fjármagns sem kemur til viðbótar í þróunarsamvinnu vegna þessa hlutfalls í stuðningi fyrir Úkraínu sem flokkast sem þróunarsamvinna. Þannig að við erum í 0,35% og svo verður það 0,37% þegar Úkraína er talin með, þetta á að vera með stuðningi fyrir Úkraínu en ekki að undanskildum honum. Ég hafði ekki áttað mig á því að orðalagið væri svona. En það stendur sem ég sagði áðan varðandi það að við erum ekki að fara inn í stofninn á þróunarsamvinnunni og taka frá fyrir Úkraínu, heldur er það viðbót. En það er þess vegna sem prósentan er að hækka, það er af því að viðbótarpeningur til Úkraínu flokkast sem þróunarsamvinna.