fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að leiðrétta þessa villu í frumvarpinu og ég vona að það sé hægt að prenta það upp eða gera eitthvað til að koma þessu í lag. En nú er það þannig að stór hluti af því sem flokkast undir þróunarsamvinnu er í raun stuðningur við hælisleitendur hér á landi. Það er nokkuð ljóst að það er mikil fækkun hælisleitenda hér á landi og þar af leiðandi vonandi líka einhver samdráttur í því fjármagni sem fer þangað. Mig langar að heyra frá hæstv. ráðherra hvort ætlunin sé þá einfaldlega að ná ekki upp í 0,35% eða 0,37% eða að nota þann pening sem sparast þarna til annarra góðra verka í þróunarlöndum.