155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:42]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Við munum áfram leggja áherslu á þau svæði og lönd sem hv. þingmaður nefndi, Miðausturlönd, Sahel-svæðið, Afganistan, Palestínu, Jemen. Það sem hefur breyst, því miður, og er þróunin er að þeim tilfellum fjölgar þar sem við þurfum að bregðast hratt við og setja fjármuni í mannúðaraðstoð vegna krísu sem myndast eða tilfella sem koma upp þannig að í rauninni er engin minni þörf fyrir þróunarsamvinnu til að mynda. Það er meiri þörf en það er líka meiri þörf fyrir mannúðaraðstoð. Þar þurfum við að geta brugðist hratt við og tekið ákvarðanir hratt. Ef þeir fjármunir væru meiri þá gætum við auðvitað brugðist oftar og hraðar við, en það eru þessi svæði sem þingmaðurinn nefndi og aðstoðin er þá bæði í samstarfi við alþjóðastofnanir og félagasamtök sömuleiðis en aðallega alþjóðastofnanir.