155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:46]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Íslensk stjórnvöld hafa í raun verið nokkurs konar frumkvöðlar þegar kemur að okkar tvíhliða þróunarsamvinnu þar sem við höfum einmitt hámarkað líkurnar á því að fjármunir fari með réttum hætti í verkefni sem raunverulega gagnast fólkinu sem þar býr með hinni svokölluðu héraðsnálgun, sem þýðir að við vinnum beint með héraðsyfirvöldum en ekki stjórnvöldum og svo þar niður. Þetta er verkefni sem stærri lönd treystu sér ekki í en við höfum sýnt fram á að þetta er hægt og skilar meiri og betri árangri og þau hafa horft til þess að taka það upp. Til að mynda ef Bandaríkin myndu gera það í stórum stíl myndi það hafa gríðarleg áhrif vegna þess að þar fara svo miklir fjármunir í þessi verkefni.

Varðandi þann þátt hælisumsókna sem hægt er að flokka sem þróunarsamvinnu þá er það mjög takmarkað, mjög lág fjárhæð og við flokkum þetta alveg eins og Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, leggur til. En ég hef sagt það áður að þegar við setjum um 25 milljarða á ári í þann málaflokk er það ekki rétt fjárfesting, því að við erum hvorki að fjárfesta í fólki með þeim hætti sem við ættum að gera, þ.e. útlendingum sem hingað koma, né nýtist það í verkefni eða með þeim hætti sem betur væri gert í gegnum þróunarsamvinnu. Af því að hv. þingmaður nefndi sömuleiðis líkur á því að fjármunir fari í hryðjuverkasamtök þá þekkjum við þá umræðu, en ég geri ráð fyrir því að þingmaðurinn sé ekki að leggja til að við slaufum allri mannúðaraðstoð inn á Gaza-svæðið, enda erum við að setja fjármuni þangað en gerum það í gegnum alþjóðastofnanir og vinnum með þeim yfirvöldum sem þar eru viðurkennd, sem eru sannarlega ekki Hamas-hryðjuverkasamtökin.