155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:48]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég nefndi nú ekki Gaza en hæstv. ráðherra gerði sér greinilega grein fyrir því við hvað væri átt eða að hverju áhyggjurnar beindust. Ég velti því áfram fyrir mér hvort í tilviki Gaza séu íslensk stjórnvöld að gera nóg til að tryggja að aðstoð okkar nýtist óbreyttum borgurum, þeim sem þurfa mest á því að halda á Gaza.

Varðandi hitt atriðið þá tek ég fram að mér finnst skilgreiningin eðlileg, mér finnst alveg eðlilegt að aðstoð við hælisleitendur hér sé höfð með í þróunaraðstoð en ítreka spurninguna til ráðherra, sem hæstv. ráðherra svaraði reyndar að nokkru leyti og ég var tiltölulega ánægður með það svar: Er ekki rétt að við vinnum að því markvisst að hærra hlutfall renni til þess að styrkja hælisleitendur og styðja þá á nærsvæðunum og þá fækka komu hælisleitenda hingað til lands á móti, til að peningarnir nýtist betur?