fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að tala um bókun 35 og ég ætla heldur ekki að tala um málefnasvið 35 heldur langar mig að tala um málefnasvið 04, sem er utanríkismál, og þá langar mig sérstaklega að ræða utanríkisþjónustuna. Mig langar að byrja á því að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að halda áfram með áætlun um að opna sendiráð í Madríd. Það er mikið fagnaðarefni og gott að sjá að það var ekki bara í fjármálaáætlun heldur líka í þessu fjárlagafrumvarpi og vonandi helst það inni. En mig langar að ræða aðeins það að í fjárlagafrumvarpinu er gerð mikil aðhaldskrafa á ráðuneytið sem hefur að sjálfsögðu áhrif líka á sendiráð og annað og allt það frábæra starf sem utanríkisþjónustan sinnir. Mín spurning er hvort við séum ekki fyrir löngu komin að sársaukamörkum þegar kemur að því að draga saman í rekstri utanríkisþjónustunnar vegna þess að þegar við gerum of mikið af slíku þá kemur það alvarlega niður á því að eiga málsvara í málum. Það mun síðan kannski kosta okkur miklu meira en það aðhald sem við náðum. Gott dæmi um þetta er ETS-kerfið sem utanríkisráðuneytið og aðrir þurftu að berjast fyrir. Við erum að setja 1,1 milljarð í það að niðurgreiða til flugfélaga. Hvað ef utanríkisþjónustan hefði verið tvöfalt (Forseti hringir.) sterkari, tvöfalt stærri og hefði getað samið þetta af sér, frítt jafnvel og miklu fyrr? Þetta er nú bara meira en þessar aðhaldskröfur, þrefaldar.