fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en mér finnst alltaf skorta svolítið upp á það hjá núverandi ríkisstjórn að átta sig á því að stundum þarf að fjárfesta til að fá miklar tekjur inn, jafnvel strax eða seinna. Það er þó í fjárlagafrumvarpinu, akkúrat undir þessum lið, gott dæmi um fjárfestingu sem er að fara að skila sér og skilar, eins og stendur hér, umtalsvert meiri fjármunum. Það er t.d. að geta gefið út Schengen-vegabréfsáritanir, þar erum við að fjárfesta 200 milljónir en fáum umtalsvert meira inn í ríkissjóð. Þarna er dæmi um fjárfestingu sem skilar sér. Þurfum við ekki að skoða meira út frá þessu sjónarhorni, hvernig við getum fjárfest í hlutum sem skila sér til baka (Forseti hringir.) en ekki bara alltaf að skera niður og skera niður?