155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:05]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fara yfir helstu atriði sem kannski hafa verið mest áberandi að undanförnu í þeim málum sem snúa að ráðuneytinu. Ég ætla bara að nota tækifærið og fara yfir það sem snýr kannski meira að stefnu frekar en krónum og aurum þótt sjálfsagt sé að fara yfir það. Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum frá 2020 hefur verið endurskoðað og uppfærð heildrænt, þar eru um 150 loftslagsaðgerðir sem við erum nú með í samráðsgátt fyrir ábendingar og athugasemdir til 22. september. Þetta er öðruvísi vinna heldur en við höfum séð áður, bæði þegar kemur að aðgerðaáætluninni, þetta er önnur aðgerðaáætlun sem kemur, en líka almennt þegar kemur að samstarfi atvinnulífs og stjórnvalda. Á bak við þetta er gríðarlega mikil vinna og hér er afraksturinn kominn sem við þurfum síðan að setjast yfir þegar athugasemdir eru komnar. Ég vona að við munum eiga gott samtal og samráð hér í þinginu og svo sannarlega líka meðal almennings og atvinnulífs.

Við höfum farið svolítið aðrar leiðir heldur en gert hefur verið iðulega þegar kemur að svæðum sem eru mikilvæg, hvort sem það eru náttúruminjar eða menningarminjar, það hefur verið nokkuð algengt eða kannski almenna reglan að nýttur hefur verið forkaupsréttur og ríkið situr þá uppi með viðkomandi eign. En í tilfelli Fjaðrárgljúfurs þar sem hluti þeirrar jarðar eða partur af gljúfrinu var seldur og ríkið hefði getað gengið inn í það, þá var rétturinn ekki nýttur og í stað þess voru gerðir samningar við kaupendur og sama var gert með Þverá sem er í Þingeyjarsýslu, ef ég fer ekki rangt með, þar eru menningarminjar sem mikilvægt er að fara vel með og við fórum þessa leið í bæði skiptin, að sleppa því að nýta forkaupsréttinn og spara ríkinu þá mörghundruð milljónir, það eru að vísu fleiri svæði þarna líka, og gera í stað þess sérstakan samning við viðkomandi landeigendur þannig að við getum náð þeim markmiðum sem við viljum, hvort sem það er friðlýsing eða að vernda menningarminjar.

Núna í vikunni skrifaði ég undir stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpuna, sem er auðvitað mikil breyting frá því sem verið hefur. Nú erum við með mjög sterkan vísindalegan grunn á bak við það, búin að skipta svæðunum upp í landshluta og það er bara í samræmi við það hvar fuglinn er. Ég tel að þetta verði fyrirmynd að veiðistjórnun á fleiri tegundum.

Við erum komin á þann stað að það er mikil umræða um þjóðgarða og við höfum unnið með svæði, bæði í Dölum, á Vestfjörðum og á Langanesi, þar sem er mikill áhugi á því, eftir að við fórum í vinnu með heimafólki, að skoða þann kost að stofna þjóðgarða á þessum stöðum.

Við höfum verið að einfalda þegar kemur að atvinnulífinu án þess að gefa neitt eftir í því sem við viljum ekki gefa eftir og það hefur komið fram í hollustuháttareglugerð og sömuleiðis var unnin mjög góð stefna um vindorku, mál sem ég vonast til að geta talað fyrir sem fyrst. Það er augljóst og öllum ljóst sem vilja sjá að við erum komin á mjög erfiðan stað í orkumálunum vegna þess að við gerðum lítið í 15, 20 ár og okkur liggur á. Við, eins og allar aðrar þjóðir sem við berum okkur saman við, þurfum að einfalda regluverk og þetta frumvarp er einn liður í því.

Við höfum sameinað stofnanir og ég er að ganga frá ráðningu forstöðumanna í þremur nýjum stofnunum, Náttúruverndarstofnun, Náttúrufræðistofnun og Umhverfis- og orkustofnun og mun stofnunum ráðuneytisins fækka úr 13 í átta um næstu mánaðamót. Í þessu felast auðvitað mikil tækifæri til að sinna hlutverkum betur en líka, sem hangir alveg saman, með einfaldara hætti.

Við höfum sömuleiðis gert úttekt á innkaupum stofnana ráðuneytisins með Ríkiskaupum, við höfum sameinað sjóði. Við höfum aukið sértekjur stofnana. Það er mjög ánægjulegt að segja frá jarðhitaleitarátakinu og hversu miklum árangri við höfum náð þar, ekki síst á Reykjanesi. Og Suðurnesjalína 2 er farin af stað og svo mætti lengi telja. En ég tók hér bara nokkra þætti og ég vonast til þess að þingmenn muni skiptast á skoðunum við mig um þessi mál og önnur, virðulegi forseti.