155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:18]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra varðandi orkuöflun. Núna er búið að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun, að ég held. Skeiða- og Gnúpverjahreppur er hins vegar búinn að kæra til úrskurðarnefndar virkjunarframkvæmd á Búrfellssvæðinu. Það er orkuskortur í landinu. Hvenær gerir hæstv. ráðherra ráð fyrir því að það hefjist framkvæmdir við virkjun í landinu svo að við þurfum ekki að búa við þá ógn að hafa viðvarandi orkuskort? Það voru nú lög til umræðu og við gátum ekki samþykkt þau, neyðarlögin um skiptingu raforku vegna raforkuskorts í landinu, þ.e. fyrir einstaklinga og smáfyrirtæki. Er þess að vænta í ár að það byrji framkvæmdir við vatnsaflsvirkjun og getur ráðherra bent okkur á hvenær það yrði? Þurfa Vestfirðingar t.d. enn þá að búast við því að í vetur verði notuð dísilrafstöð í Bolungarvík til að keyra raforkuframleiðslu á Vestfjörðum? Hvar standa þau mál?

Ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra um það sem kemur fram um breytingar á fjárheimildum málaflokksins og varðar d-lið. Þar segir:

„Almennt útgjaldasvigrúm málaflokksins eykst varanlega um 500 m.kr. sem ætlað er til ráðstöfunar í orkumál með áherslu á græna orkuöflun þar sem virkir notendur framleiða fyrir eigin notkun og selja umframorku, á stuðning við ör- og smávirkjanir og verkefni sem stuðla að bættri orkunýtni.“

Er þetta um það þegar einstaklingar eru kannski að setja sólarpanela á húsið hjá sér og selja inn á kerfið? Hvað er nákvæmlega verið að gera þarna? Og smávirkjanir, það eru þá þessar ýmsu sprænur sem einstaklingar geta virkjað, munu þær ekki fara í umhverfismat ef þær eru yfir ákveðinni stærð? Það væri gott ef ráðherra gæti aðeins fjallað um d-lið, þessar 500 millj. kr. og að lokum — já, ég geymi það fyrir seinna andsvar.