155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:22]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Saga smávirkjana á Íslandi er mjög áhugaverð og merkileg og við settum upp okkar fyrstu virkjun 1904 þegar Jóhannes Reykdal setti upp virkjun í Hafnarfirði og á Suðurlandi var það eiginlega öll Fljótshlíðin og undir Eyjafjöllum, það var mjög mikið af smávirkjunum þar. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra núna um skipulagsmálin: Er ekki kominn tími til þess, í því sem lýtur að stórframkvæmdum sem eru þjóðhagslega mikilvægar eins og virkjunarframkvæmdum og líka innviðaframkvæmdum, eins og Sundabrú og við getum talað um Teigsskóg líka sem tók 20 ár að fara í gegnum skipulagsferli og það allt, að miðstjórnarvaldið fari að taka sér meira skipulagsvald þegar kemur að virkjunum og mikilvægum innviðum í íslensku samfélagi sem hafa þjóðhagslega þýðingu? Við sjáum núna kæru sveitarfélags til úrskurðarnefndar, það er lítill sveitahreppur sem er að kæra þarna framkvæmd sem er gríðarlega mikilvægt að nái fram að ganga. (Forseti hringir.) Hver er skoðun ráðherra á því að miðstjórnarvaldið komi sterkar inn í skipulagsvaldið hvað þetta varðar?