155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:24]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Ég gleymdi bara að svara hv. þingmanni áðan: Auðvitað munum við leggja áherslu á það að umhverfið í kringum þar sem menn geta selt inn á kerfið verði skilvirkt og gott, það er eitthvað sem við munum koma með þingmál um í vetur til að tryggja það. Varðandi ýmsa orkukosti þá hvet ég þingmann til að kynna sér Ásmundarskýrsluna sem hv. þm. Ásmundur Friðriksson stýrði, þar er tekið á ýmsum þáttum varðandi smávirkjanir. En, virðulegi forseti, af því að hv. þingmaður spyr mig hvort skipulagsvald sveitarfélaganna eigi að fara til ríkisins vegna þeirrar stöðu sem við erum komin í, þá getum við bara orðað það þannig, ég ætla ekki að segja meira á þessu stigi máls, að það kemur mér ekki á óvart að þessi umræða sé farin af stað. Það kemur mér ekki á óvart. (Forseti hringir.) Við getum orðað það þannig að það er alvarlegt þegar menn eru að setja fótinn fyrir eitthvað sem er löngu búið að ákveða og við þurfum á að halda.