155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:25]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Mig langar að beina sjónum sérstaklega að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Það var ánægjulegt þegar við fengum hana loksins í loftið í júní á þessu ári, að þremur árum liðnum eftir að þessi ríkisstjórn tók við. Við vorum mörg orðin ansi langeyg eftir henni þannig að gleðin var nokkur. Ég er ekki einn af þeim sem kvartar undan því að aðgerðum hafi fjölgað, öðru nær, þær mega vera fleiri ef þær skila einhverjum árangri, en ég hef hins vegar áhyggjur af því að í þessari áætlun sé of mikið af aðgerðum sem ekki er búið að móta nógu vel og ekki er víst að skili nógu miklum árangri.

Mig langar að spyrja um tvennt. Í fyrsta lagi þá eru aðgerðirnar sem lagðar eru fram í þessari uppfærðu áætlun metnar upp á 35% samdrátt í samfélagslosun sem fer upp í 45% ef taldar eru þær aðgerðir sem ekki er hægt að meta, hvernig sem ráðuneytið fór að því. Hvorug þessara talna nær þó 55% markmiðinu sem er í stjórnarsáttmálanum. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort ríkisstjórnin sé fallin frá markmiði sínu um að ná samdrætti í samfélagslosun niður um 55%.

Síðan langar mig að spyrja: Hvað gerist að umsagnarferli loknu? Hvað verður gert við þær umsagnir sem almenningur og sérfræðingar skila inn í samráðsgáttina? Á vef samráðsgáttarinnar stendur að markmiðið með framlagningu sé að hvetja til umræðu um loftslagsaðgerðir, en það stendur hvergi berum orðum að umsagnirnar (Forseti hringir.) verði nýttar til að breyta einhverju í aðgerðaáætluninni. Mun áætlunin verða uppfærð með tilliti til umsagnanna eða er áætlunin eins og hún liggur í samráðsgáttinni það sem mun standa?