155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:30]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra segir að umsagnir verði teknar saman og síðan afhentar verkefnisstjórn sem geti notað þær við forgangsröðun verkefna. Ég skil það þá sem svo að aðgerðaáætlunin sem slík muni standa eins og hún er. Það finnst mér ekki endilega það samráð sem fólk býst kannski við. Ég held að fólk reikni með því að þegar haft er samráð við það um tiltekið skjal geti það skjal tekið breytingum á grundvelli þess samráðs, sérstaklega þegar, eins og ráðherra fór yfir, áætlanirnar eru lægri en það sem gengið var út frá í stjórnarsáttmálanum. Raunhæfari áætlanir, segir ráðherra, en metnaðarlausari eru þær. Þær gætu verið metnaðarfyllri en samt raunhæfar ef pólitísk forysta hefði verið til staðar frá upphafi verkefnis. (Forseti hringir.) En pólitíkin getur þá alla vega leitað í þetta samráð eftir raunhæfum og metnaðarfyllri aðgerðum til að breyta aðgerðaáætluninni (Forseti hringir.) frekar en að taka saman útdrátt og senda til verkefnisstjórnar.