155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:31]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég veit ekkert hvert hv. þingmaður fór núna. Ég sagði áðan og segi enn: Ráðuneytið tekur saman umsagnirnar og vinnur úr þeim fyrir verkefnisstjórn svo að hún geti nýtt þær í vinnu sinni við fullmótun og forgangsröðun aðgerða. Auðvitað eru umsagnirnar til þess að geta nýtt þær. Ef hv. þingmaður heldur að þegar góðar hugmyndir koma, og ég efast ekki um það, úr umsagnarnefnd séu þær ekki notaðar þá er það fullkominn misskilningur. Ég fór yfir það að þetta er lifandi plagg, það mun taka breytingum eftir hálft ár og eitt ár og þá getur vel verið að það verði orðið allt annað vegna þess að aðstæður hafa breyst. Eitt dæmi, af því að langstærsti hlutinn í þessu er orkuskipti: Þegar grænbókin var skrifuð fyrir tveimur og hálfu ári síðan var skrifað út að það væri ekki hægt að nota rafmagn á stærri bíla. Núna erum við með tugi stærri bíla og fleiri á leiðinni, sem er alveg gríðarlega gott fyrir okkur öll vegna þess að þannig nýtist orkan sem best og auðveldar okkur að fara í orkuskipti.