fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um hvaða leiðir hann hyggst fara til að fjármagna og efla frekar rannsóknir á náttúru Íslands, líffræðilegri fjölbreytni, sérstöðu lífríkis landsins og verndargildi. Enn fremur hvernig hann hyggist stuðla að því að þær rannsóknir fari fram vítt og breitt um landið, þ.e. ekki þessi vertíðarvinna stofnana sem staðsettar eru í Reykjavík heldur ekki síður hjá rannsóknastofnunum staðsettum á svæðunum sjálfum. Vil ég í þessu sambandi benda sérstaklega á lækkað framlag í fjárlagafrumvarpi til náttúrustofa sem sinna mikilvægum rannsóknum og vöktunarverkefnum víðs vegar um landið. Það gengur þvert gegn slíkum markmiðum. Hyggst ráðherrann beita sér fyrir leiðréttingu á þessu og tryggja betur mikilvægt starf náttúrustofanna og ekki síður efla það?