fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil bara biðja hv. þingmann velvirðingar, ég heyrði ekki nákvæmlega í hvað hann var að vísa í þarna. (BjarnJ: Lækkað framlag til náttúrustofa í fjárlagafrumvarpi.) Já, ég hef ekki skoðað það sérstaklega. Það sem hv. þingmaður er að vísa hér til verður örugglega skoðað í meðförum þingsins. Ég vil hins vegar segja, vegna þess sem hv. þingmaður nefnir með rannsóknir og sérstaklega líffræðilega fjölbreytni og að gera það á viðkomandi stað, að þá gengur öll sameiningarhugmyndin út á það að færa störfin þangað sem verkefnin eru. Við erum að færa þrjár stofnanir út á land. Það voru ekki allir sem trúðu mér þegar ég sagði þetta, þegar ég flutti frumvörpin um þetta, en núna er það bara niðurstaðan. Náttúrufræðistofnun verður á Vesturlandi, Náttúruverndarstofnun verður á Hvolsvelli og höfuðstöðvar Umhverfis- og orkustofnunar verða á Akureyri. Þetta er hins vegar gert mjög mjúklega, það er ekki verið að neyða fólk til að flytja en hins vegar verða störfin auglýst á landsbyggðinni. Þetta er auðvitað mjög stórt skref sem ég veit að hv. þingmaður styður og er ánægður með.
Varðandi náttúrustofurnar þá held ég að það sem hv. þingmaður er að vísa til sé að þær fengu 48 millj. kr. í fyrra hjá fjárlaganefnd sem var tímabundið, þá fellur það sjálfkrafa niður. Síðan þurfa menn að setjast yfir það. Náttúrustofurnar eru auðvitað mikilvægar og hafa gegnt góðu hlutverki en þetta er svolítið sérstakt fyrirkomulag. En þar er mikil þekking, staðarþekking og vísindaþekking sem nýtist okkur vel.