155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:37]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Í vinnu við stofnanabreytingarnar var m.a. rætt um möguleg samlegðaráhrif milli náttúrustofa landsins og Náttúrufræðistofnunar Íslands, þar sem þessar rekstrareiningar hafa sömu markmið og hlutverk við vöktun og kortlagningu náttúru Íslands. Það var stýrihópur settur af stað sem hafði það hlutverk að skoða starfsemina og hvaða tækifæri eru í því og kortleggja líka þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir.

Varðandi jöfnunina þá er þetta núna orðið, ef allt er tekið, bæði jöfnun á dreifingu raforku og jöfnun húshitunarkostnaðar, um 5 milljarðar á ári sem fara í þetta. Við erum auðvitað ekki að gefa neitt eftir í því að reyna að ná jöfnun, en við erum farin að leita að heitu vatni til að jafna til langs tíma. Það hefur náttúrlega þann kost að fólk fær að njóta heita vatnsins nálægt sér (Forseti hringir.) og allra þeirra tækifæri sem því fylgja en það losar líka um raforku og ekki veitir af. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður þekkir síðan það sem kemur að því að vernda heimilin og minni aðila og við getum rætt það betur seinna.