155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:39]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ágæta inngang og kynningu á málaflokknum og tek heils hugar undir áhyggjur hans af stöðu orkuframleiðslu á Íslandi. Nú nefndi ráðherra bæði í inngangi sínum og í svörum við annarri fyrirspurn sem hér hefur borist að sveitarfélög hafi allmikil völd til að tefja mál. Uppi hafa verið hugmyndir um það að auðvelda þeim að meta hagsmuni sína og að gera það skýrar hversu mikilvægt það er að þessar framkvæmdir fari af stað með því að gera breytingar á reglum og lögum um fasteignamat orkumannvirkja. Það er ljóst að almennt séð hafa minni háttar sjónarmið fengið að trompa meiri háttar þjóðhagsleg sjónarmið í ákvörðun um framkvæmdir orkumannvirkja og það er hluti af þeirri töf sem nú skapar það ófremdarástand sem ríkir í orkumálum. Mun mildari leið en sú sem hér var rædd áðan um að svipta sveitarfélögin skipulagsvaldi er auðvitað að þau njóti hluta ágóðans og um leið fría þau undan því að þurfa að taka tillit til þess í skipulagi verkefna og atvinnuuppbyggingar hvort orkan er nýtt í sveitarfélaginu eða ekki vegna þess að að sjálfsögðu er það fyrst og fremst hagsmunamál íslensks samfélags að orkan verði til. Ég vil spyrja ráðherrann muni beita sér fyrir því að slíkar breytingar verði gerðar og fjárhagslegur ávinningur sveitarfélaganna af orkumannvirkjum verði meiri og honum yrði betur dreift á sveitarfélögin í nærsamfélaginu.