fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans innlegg. Varðandi spurninguna sem kom í lokin: Nei, ég mun ekki beita mér fyrir því vegna þess að ég er löngu búinn að því. Ég lagði fram tillögu í ríkisstjórninni, sem var samþykkt, um að fara í þessa vinnu og þáverandi fjármálaráðherra, núverandi forsætisráðherra, setti stýrihóp af stað sem kom með tillögur sem voru kynntar undir forystu Hilmars Gunnlaugssonar hæstaréttarlögmanns. Nú er verið að vinna í ráðuneytinu að því að forma það í frumvarpsform. Það er ákveðið flækjustig í þessu, við skulum alveg horfast í augu við það. Það snýr ekki að því markmiði að færa ábatann meira til nærsamfélagsins, það er eitthvað sem er sátt um. En þegar kemur að útfærslunni þá erum við fyrirkomulag sem kemur frá jöfnunarsjóði og ýmsu öðru, sem er ekki alveg sjálfgefið að allir verði sammála um. Hv. þingmaður nefndi kjarna máls sem er nærsamfélagið, vegna þess að ég held að það sé ekki vilji til þess að ganga þannig fram að ágóðinn fari þannig að það muni drepa allan hvata til sameiningar sveitarfélaga. Það skiptir máli. En hins vegar það að færa hann meira til nærsamfélagsins er eitthvað sem ég er fullkomlega sammála hv. þingmanni um og er fyrir lifandis löngu búinn að beita mér fyrir því og sú vinna er farin af stað. Ég vonast til þess að málið komi hingað í þingið sem fyrst en við verðum auðvitað að horfast í augu við að það er ákveðið flækjustig þegar kemur að framkvæmdinni. En ég er ánægður að heyra að ég og hv. þingmaður erum sammála um að við þurfum að stíga þessi skref, að nærsamfélögin fái að njóta ábatans meira en nú er.