fjárlög 2025.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Það liggur á að flýta þessari vinnu vegna þess að, eins og hann svo sem gaf í skyn í tölu sinni, þá stranda einmitt stórverkefni á deilum um þetta efni og ég held að því fyrr sem þær leysist því betra. En mig langar að víkja að öðru sem er að fyrir margt löngu vann ég ásamt fleiri sérfræðingum greiningu á flækjustigi við ákvarðanatöku varðandi orkuframkvæmdir á Íslandi, sem kemur í ljós að er nokkuð á heimsmælikvarða. Eitt af því sem er mjög sérstakt er að við skulum vera með það umfangsmikla og vandaða ferli sem heitir rammaáætlun en þegar því sleppir taki við því sem næst endurtekning á sama ferli aftur. Það eru heimildir í þeim reglum sem Ísland hlítir varðandi vandaða ákvarðanatöku í umhverfismálum sem heimila að setja þjóðhagslega mikilvæg verkefni í forgang. Hefur hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) skoðað þessa möguleika og ef svo er mun hann beita sér fyrir því að þeim sé beitt?