fjárlög 2025.
Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir sitt innlegg. Aðeins samt varðandi hitt: Eins gallharður og ég er á því að það verði að koma meiri tekjum til nærsamfélagsins þá finnst mér algjörlega fráleitt að menn noti kæruleið til að ná einhverjum pólitískum markmiðum fram. Það þýðir fullkomnar ógöngur ef það er eitthvað sem getur gengið upp.
Varðandi rammaáætlun þá er náttúrlega vindorkufrumvarpið og þingsályktunartillaga í tengslum við það einföldun á rammaáætlun. Sömuleiðis var aflaukningarfrumvarpið einföldun á rammaáætlun, það var bara tekið út úr ramma og er nú orðið að lögum. Við erum líka með á þingmálaskrá frumvörp sem eru einföldunarmál. Sameining stofnana er forsendan fyrir einföldun þannig að við höfum verið að vinna í öllu þessu og munum halda því áfram. Og já, ég kannast við það sem hv. þingmaður er að vísa til og í mínum huga er þetta bara einfalt. Ég mun stíga öll þau skref sem ég tel vera skynsamleg (Forseti hringir.) til þess að einfalda og flýta fyrir því að ná í græna orku án þess að gefa eftir það sem okkur finnst vera mikilvægt því að oft er þörf en nú er svo sannarlega nauðsyn.