155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:46]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Nú ætla ég að byrja á því að koma yður á óvart. Ég ætla að byrja á því að hrósa hæstv. ráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fyrir vinnu hans við endurskipulagningu stofnana, a.m.k. að hluta, og sérstaklega fyrir að huga að landsbyggðinni og landinu öllu í þeirri vinnu. Það er rétt að nefna það þegar eitthvað er vel gert. En ég nefni þetta líka í von um að hann verði ekki of styggur eða reiður þegar ég kem að aðalfyrirspurninni sem varðar aðgerðaáætlunina, atriðin 150. Ég spyr hæstv. ráðherra hvort menn hafi reiknað það til enda eða a.m.k. gert einhverja tilraun til þess að meta kostnaðinn af því að fara í 150 aðgerðir sem margar eru til þess fallnar að refsa fyrir framtakssemi, að þrengja að atvinnulífinu, búa til nýjar kvaðir og gjöld, meta hver áhrifin af því geta orðið á verðmætasköpun. Ég er ekki að spyrja upp úr þurru því að mörg Evrópulönd hafa rekið sig á það, ekki hvað síst Þýskaland, gamla risaiðnveldið, að íþyngjandi regluverk sem í mörgum tilvikum var réttlætt með vísan til loftslagsmála hefur dregið úr verðmætasköpun og framleiðslu í Þýskalandi sem í auknum mæli hefur flust til annarra landa, ekki hvað síst Kína. Nú eru þýskar bílaverksmiðjur lentar í verulegum vandræðum og farnar að velta fyrir sér að loka að hluta til framleiðslunni þar í landi og flytja hana annað. Hefur hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin velt fyrir sér kostnaði af slíkum áhrifum 150 atriðanna?