155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:48]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hrósið og er ekkert hvekktur en bið hv. þingmann í mestu vinsemd að kynna sér málin. Aðgerðaáætlun, eins og hér hefur verið gagnrýnt, tók tvö ár. Af hverju? Af því að hún er unnin með atvinnulífinu með það að markmiði að tryggja samkeppnishæfni, gera einföldustu hlutina fyrst en skrifa líka inn það sem ekki er hægt að gera fyrr en seinna þegar tæknin er komin. Og útgangspunkturinn í allri aðgerðaáætluninni er einföldun regluverks. Við höfum unnið að því markvisst, ekki bara með sameiningu stofnana sem er grunnurinn að því, heldur erum við núna með í samráðsgátt t.d. frumvarp um afhúðun, við höfum lagt áherslu á að taka af gullhúðunina sem hefur flætt hérna inn, því miður. Þannig munum við vinna áfram. Vindorkufrumvarpið, það er einföldun. Aflaukningarfrumvarpið sem varð að lögum, það er einföldun, það lækkar kostnað fyrirtækja. Þetta er grunnurinn að aðgerðaáætlun. Síðan eru allra handa hugmyndir þarna sem menn vinna með þeim aðilum sem þurfa að koma þeim í framkvæmd. Af hverju gera þeir það, af hverju er þetta ekki gert bara inni á skrifborði uppi í ráðuneyti? Það er til þess að huga að samkeppnishæfni og finna bestu mögulegu leiðir að markinu. Þarna erum við að gera nákvæmlega það sama hvort sem fólki líkar það betur eða verr því að loftslagsmálin ganga nokkurn veginn eingöngu út á orkumálin, að taka út jarðefnaeldsneyti og setja græna orku í staðinn, sem við Íslendingar gerðum þegar enginn annar gerði það. Svo þegar aðrir byrjuðu á því þá hættum við því, því miður. Við erum byrjuð á fullu aftur, sem betur fer, en betur má ef duga skal. Þess vegna er ég ekkert hvekktur, ég bara bið hv. þingmann að setja sig inn í þetta mál. (Forseti hringir.) Ég hef verið svolítið skammaður hérna hinum megin fyrir að hafa gert nákvæmlega þetta en ég er mjög ánægður með það.