155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:52]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Úr því að hv. þingmaður, og allur þingflokkur Miðflokksins, er búinn að kynna sér þetta svona vel, af hverju vissi hv. þingmaður ekki að við unnum þetta með atvinnulífinu? Af hverju vissi hv. þingmaður ekki að útgangspunkturinn er einföldun regluverks? Af hverju vissi hv. þingmaður ekki um þá einföldun regluverks sem við höfum farið í? Við fórum ekki í sameiningu stofnana bara út af því að höfðum ekkert annað að gera og það vantaði verkefni. Þetta er grunnurinn að því að við getum einfaldað regluverk og aukið samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs á þessu sviði þannig að það er fullkomlega útilokað að hv. þingmaður og allur þingflokkur Miðflokksins hafi kynnt sér þetta mál mjög vel. Aftur: Við unnum þetta með atvinnulífinu. Þeirra skilaboð eru mjög skýr, þeir vilja taka þátt í orkuskiptunum. Það hefur verið gríðarlega góð fjárfesting fyrir íslenskt atvinnulíf fram til þessa og fyrir íslenskt þjóðfélag, aukið þjóðaröryggi. (Forseti hringir.) Saman eru stjórnvöld og atvinnulíf að reyna að finna leiðir til að gera þetta með eins hagkvæmum hætti og mögulegt er og styrkja og efla samkeppnishæfni okkar en ekki veikja hana.