155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:56]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir innleggið og stutta svarið er já. Fyrst vil ég byrja á skipulagsmálunum, þeir lagabálkar eru ekki hjá mér, það er Skipulagsstofnun, í það minnsta er farið þar yfir þetta, þannig að það snýr ekki bara að mér þegar kemur að þessum málum. En við höfum lagt mikla áherslu á vísindastarf. Ný vísindaskýrsla kom út á síðasta ári um loftslagsbreytingar sem snertir á þessu sem hv. þingmaður vísar til. Ég hef verið í samskiptum við þá vísindamenn hér og sérfræðinga sem hafa vakið athygli á þessu hér innan lands og það er alveg skýrt hjá okkur að við erum að efla þetta fyrirkomulag og kerfi og setja meiri kraft í komandi vísindaskýrslu. Það er mikil óvissa í þessum rannsóknum og margar sviðsmyndir og margar mjög alvarlegar eins og hv. þingmaður nefndi. En við erum auðvitað að efla þær stofnanir sem halda utan um þetta eins og Náttúrufræðistofnun. Okkar vísindamenn eru að rannsaka þetta og taka saman alþjóðlegar rannsóknir og við viljum auðvitað leggja líka áherslu á að vinna með öðrum aðilum þegar kemur að þessu. Ákall þessara aðila hefur verið að við sem erum norðarlega, þetta snýst ekki bara um Ísland, leggjum alveg sérstaka áherslu á þessar rannsóknir því að þarna er mikið undir og við skulum vona að þessi versta sviðsmynd sem hv. þingmaður vísar til raungerist ekki. Það yrði mjög erfitt og alvarlegt.