fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég skora á hann að sjá til þess að það sé nægt fjármagn til rannsókna á áhrifum loftslagsbreytinga og þá sérstaklega á íslenskt loftslag og þennan bláa blett sem ég minntist á áðan. Ég sem nefndarmaður í fjárlaganefnd efast ekki um að nefndin muni taka heils hugar undir það. Staðan gæti orðið svo alvarleg.
Mig langar að spyrja líka um annað sem er tengt loftslagsmálunum, þ.e. að Ísland er með ótrúlega framleiðslu á hreinni raforku og mikið orkuland, eins konar Sádi-Arabía rafmagnsins. Við erum komin langt í þessu. Vissulega þurfum við að raforkuvæða bílaflotann með innviðum og svoleiðis, en við erum komin það langt, svipað og Noregur t.d., og það var grein í Bergens Tidende fyrir nokkrum misserum sem Morgunblaðið vitnaði til, að við værum komin það langt að það væri svo dýrt fyrir okkur að ná betri árangri. Er verið að taka tillit til þess í alþjóðasamningum hvað við erum komin langt í loftslagsmálum? Er ekki kominn tími til að horfa á það að þegar við rafvæðum bílana, (Forseti hringir.) lokum dísilverinu í Bolungarvík o.s.frv., þá förum við að einbeita okkur meira að rannsóknum í staðinn á hafsvæðinu í kringum okkur og í þessum heimshluta og byggjum upp mikla þekkingu á því sviði?