155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:59]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Stutta svarið við spurningunni um hvort tekið er tillit til þess, er já. Þegar við vorum t.d. í samfloti með Noregi og ESB, sem voru með 45% samdrátt, þá vorum við með 29. Ef við uppfærum þetta í samræmi við það þegar ESB fer í 55 þá erum við í 40 þannig að það er tekið tillit til þess. Síðan er það ETS-kerfið, sem er stóriðjan, millilandaflugið og millilandasiglingar — þau eiga að keppa á sama grunni og önnur sambærileg fyrirtæki á EES-svæðinu. Það tengist ekki beinni ábyrgð Íslands. En hins vegar liggur það fyrir að stóru verkefnin verða bara hjá öllum, við erum náttúrlega á sama stað og hinir þegar kemur að rafeldsneyti og flugvélaeldsneyti og öðru slíku sem menn eru byrjaðir að þróa sig inn í. (Forseti hringir.) En það er alveg verk að vinna hjá okkur hins vegar og þó að loftslagsmálin væru ekki, þá væri samt skynsamlegt (Forseti hringir.) að fara í orkuskiptin þegar kemur að t.d. bílaflotanum.