155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:07]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er ákveðinn misskilningur í gangi hjá hv. þingmanni. Það sem menn eru að líta til í þessu eru bara atriði eins og það að við erum inni á Evrópska efnahagssvæðinu og t.d. höfum við verið gullhúða okkur, þ.e. án þess að segja þingi og þjóð frá er lögum breytt með þeim hætti að við erum að ganga lengra en þær tilskipanir sem eru á EES-svæðinu gera ráð fyrir. Hv. þingmaður nefndi nýsköpun og það erum við sem bjuggum til okkar nýsköpunarumhverfi sem aðrir horfa til. Við höfum búið til þau fyrirtæki sem við þekkjum og erum stolt af. Það er ekki rétt að leggja þetta upp á þann veg að þetta komi allt saman í gegnum EES. Það er langur vegur frá. En í þessu tilfelli er það einfaldlega þannig að þetta er mikilvægt og ég fagna því að við tökum umræðu um nákvæmlega þessa þætti. Við eigum alltaf að hafa augun á samkeppnishæfninni og því að hér sé skilvirkt og gott regluverk til að við náum okkar markmiðum. Það er mikilvægt að markmiðin sem við erum með séu raunhæf og séu eitthvað sem við getum náð.