fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Undir lok umræðunnar er rétt að koma nokkrum hlutum á framfæri. Hagkerfið er að koma út úr miklum efnahagslegum uppgangi sem hefur jafnframt þýtt að eftirspurn eftir fjármagni, vörum, þjónustu og vinnuafli hefur verið mikil og það hefur sannarlega ýtt undir þenslu og neyslu í samfélaginu á síðustu árum. Fylgifiskurinn hefur verið há og þrálát verðbólga sem náði hámarki á síðasta ári, febrúar á síðasta ári, fór í 10,2% en er komin niður í 6 og stefnir sannarlega niður í 5 í lok þessa árs og samkvæmt spá Seðlabankans í 3,5% í lok árs 2025 þannig að við erum sannarlega á réttri leið.
Ytri aðstæður hafa einnig á sama tímabili ýtt undir verðbólgu, svo sem hækkandi verð á innflutningi á framleiðsluvörum og neysluvörum og á sama tíma hefur orðið mikil fólksfjölgun sem eðlilega hefur haft áhrif á eftirspurn eftir húsnæði, svo dæmi sé tekið. Þá hafa afleiðingar jarðhræringa á Reykjanesi aukið spennuna enn frekar. Markaðurinn hefur ekki getað annað eftirspurninni á svo skömmum tíma þar sem það tekur jú alltaf nokkurn tíma að bregðast við aukinni eftirspurn. En þrátt fyrir hækkun íbúða- og leiguverðs er húsnæðiskostnaður lægra hlutfall af neysluútgjöldum heimilanna á Íslandi en á flestum hinum Norðurlöndunum og í ágætum takti við meðaltal OECD-ríkjanna. Þetta sýna gögn frá OECD. Skuldsetning íslenskra heimila í hlutfalli við ráðstöfunartekjur er margfalt lægri á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum og tiltölulega lítil skuldsetning mildar áhrif vaxtahækkana á greiðslubyrði heimilanna almennt. En það gildir ekki um þau heimili, sérstaklega ungs fólks, sem er með háa skuldsetningu og má segja að stýrivextirnir bíti þar hvað harðast. Við sjáum það í okkar gögnum. Vaxtabyrði ungs fólks hefur því aukist og því hafa aðgerðir ríkisstjórnarinnar miðast að því að styðja við skuldsetta íbúðarkaupendur, m.a. með öflugum stuðningi við barnafjölskyldur, húsnæðiskaupendur og þá sem eru á leigumarkaði, samanber aðgerðir í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum markaði. Þar má nefna að fjölskyldur með börn á grunnskólaaldri eru að fara að fá núna fríar skólamáltíðir, svo dæmi sé tekið.
Svonefndir stöðugleikasamningar voru undirritaðir á almennum vinnumarkaði í byrjun ársins. Þeir miða að því að skapa efnahagslegan fyrirsjáanleika og skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og stýrivaxta. Stjórnvöld greiddu fyrir gerð þessara kjarasamninga með sérstökum aðgerðum sem fela í sér útgjöld sem nema yfir 80 milljörðum á samningstímanum, sem sagt á fjórum árum, til að styðja við launafólk og heimilin í landinu. Þessar aðgerðir eru að fullu fjármagnaðar. Vegna núverandi stöðu í efnahagsmálum er mikið hagsmunamál að rjúfa ekki sátt á vinnumarkaði og í því ljósi vil ég leggja áherslu á mikilvægi þess að kjarasamningar á opinberum vinnumarkaði verði í samræmi við þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði og þá sem þegar hafa verið undirritaðir á opinbera vinnumarkaðnum, sem er um einn þriðji af þeim hópi. Engin launahækkun mun jafnast á við kjarabótina sem fæst með lækkun verðbólgu og vaxta. Það er okkar mikilvægasta og allra helsta markmið og verkefni.
Í frumvarpinu koma einnig fram tillögur sem ætlað er að auka velferð örorkulífeyrisþega og snýr hún að innleiðingu nýs örorkulífeyriskerfis sem samþykkt var á þinginu í vor síðastliðið en tekur gildi 1. september á næsta ári. Hækkun framlags vegna nýs kerfis nemur alls um 4,4 milljörðum kr. á árinu en heildarkostnaður er ríflega 18 milljarðar á ársgrundvelli. Heildarendurskoðun á fyrirkomulagi örorkubóta hefur lengi verið í undirbúningi en markmiðið er að bæta kjör örorkulífeyrisþega og tryggja einfaldara og réttlátara kerfi, betra kerfi fyrir nær alla. Þessu tengt er í frumvarpinu hækkun á almenna frítekjumarkinu til aldraðra sem hækkar umtalsvert og kostar um 2,7 milljarða, hækkun sem er um 46%. Það hefur ekki hækkað síðan 2017 og er að taka vísitöluleiðréttingu frá þeim tíma.
Ríkisstjórnin hefur sett sér skýr og ákveðin markmið um að beita ríkisfjármálunum til að vinna að lækkun verðbólgunnar. Þess vegna er aðhald í fjárlögunum eins skýrt og raun ber vitni, upp á tæpt prósent eða 0,9% af landsframleiðslu, um 40 milljarða kr. aðhald. Þau áform komu skýrt fram í fjármálaáætluninni sem kynnt var í vor og styðja þar með við markmið Seðlabankans um verðstöðugleika. Í þessu frumvarpi kristallast sá ásetningur að íslenskt efnahagslíf nái að aðlaga sig að breyttum aðstæðum og búa í haginn fyrir nýtt vaxtarskeið á traustum grunni, vaxtarskeið sem hefst strax á næsta ári þar sem spáð er hagvexti upp á 2,6% strax á árinu 2025. OECD hefur spáð því að á næstu árum þar á eftir verði Ísland með í það minnsta þann hagvöxt sem er prósenti eða jafnvel 1,5% yfir því sem búast má við í Evrópu að öðru leyti þannig að horfur á Íslandi eru býsna bjartar.
Í þessari áætlun felst markmið um bætta afkomu ríkissjóðs og markvisst aðhald í opinberum umsvifum í því skyni að styðja við hjöðnun verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta en þó ekki í þeim mæli að það geti valdið lífskjararýrnun og verulega auknu atvinnuleysi eða þjónustuskerðingu í okkar mikilvægu kerfum því að á sama tíma er ríkisstjórnin einbeitt í að verja þau grunnkerfi sem velferð samfélagsins byggist á.
Mín lokaorð í þessari umræðu eru kannski eins og heiti frumvarpsins: Þetta er allt að koma. Við þurfum að hafa úthald. Útgjöldin eru að fara niður í heild sinni. Vöxturinn er minni og sem hlutfall af vergri landsframleiðslu talsvert minni en verið hefur. Á meðan leyfum við tekjunum að vaxa þannig að við náum heildarjöfnuði fyrr en seinna. Frumjöfnuður hefur einungis verið neikvæður í þrjú skipti, tvö Covid-árin og árið þar á eftir. Við erum auðvitað að glíma við þær skuldbindingar sem við tókum á okkur í gegnum Covid og greiða þær niður og með því að gera það með þessum skynsamlega, hóflega takti og samhliða tryggja grunnkerfin okkar, tryggja atvinnu í landinu, tryggja grunninn að verðmætasköpun, þá getum við verið að tryggja grunninn að bjartari framtíð sem svo sannarlega er í kortunum en forðast allar kollsteypur. Þetta er allt að koma.