155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:27]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Fjárlög eru pólitískasta þingmál hvers árs, ramminn utan um sameiginlega sýn stjórnarflokka fyrir komandi ár. Þetta er vettvangurinn til að takast á um stóru myndina og þess vegna segir það sína sögu hvernig umræðan hefur verið síðustu tvo daga. Þess vegna segir það sína sögu að þegar hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra mætir hér í sal til að senda málið alla leið til nefndar er hann skilinn eftir einn úti á mörkinni. Hér sitjum við þrír þingmenn stjórnarandstöðunnar og fylgjum ráðherranum síðustu metrana, stjórnarliðar nenna þessu ekki lengur. Við fundum það mjög vel í umræðunum frá bæði þeim þingmönnum sem tóku þátt en kannski ekki síst ráðherrunum að ríkisstjórnin er hægt og sígandi að setja niður lendingarhjólin, þau eru að fara að snerta flugbrautina fljótlega, fyrr en ætti að vera. Það er heill vetur fram undan og þetta ætti að vera tíminn þar sem þau koma til þings í dálitlum baráttuhug, ætla að klára hluti, gera og græja, en það er nú öðru nær. Það er ekki tilfinningin sem við fáum í þessari umræðu.

Það voru nokkur áhugaverð augnablik í umræðunni þar sem ráðherrar sýndu svo vel hvernig þeir taka ýmis stór mál sem hafa verið að velkjast þeirra á milli síðustu mánuði og ýta þeim hægt og bítandi á undan sér þannig að þau verði bara vandamál næsta ráðherra. Sérstaklega var það skemmtilegt í tilviki hæstv. matvælaráðherra. Það er svo sem enginn að erfa það við hana, nýkomin í ráðuneytið, að það sé mikið mál að klára stór þingmál sem hafa lent í vandræðum. Lagareldisfrumvarpið rataði ekki á þingmálaskrá. Það verður þá væntanlega næsti ráðherra á næsta kjörtímabili sem þarf að takast á við villta vestrið í sjókvíaeldinu. Hún var spurð út í hvalveiðar og sagði þar að hún ætlaði að bíða eftir skýrslu sérfræðihóps sem síðasti ráðherra setti af stað. Sá hópur ætlaði að skila einhvern tímann í kringum áramótin. Ef það tefst eitthvað meira tekur væntanlega næsti ráðherra við því kefli. Búvörulögin, undanþágan sem var felld brott fyrir framleiðendafélög sem er núna á næstunni að fara að valda gjörbreytingu á þeim markaði, hvorki bændum til gagns né heldur neytendum — það er eitthvað sem hún sagði berum orðum að yrði skoðað af næsta ráðherra. Stóru ágreiningsmálin á þeim bænum verða afgreidd af einhverjum öðrum en þessari ríkisstjórn.

Svo kom hæstv. innviðaráðherra og var spurð út í húsnæðismarkaðinn. Það var mikið fjallað um hann, enda er það einn stærsti veikleiki efnahagskerfisins akkúrat núna hversu lítið framboð er af aðgengilegu húsnæði fyrir sérstaklega fyrstu kaupendur. Þá fór hæstv. ráðherra að telja upp ýmislegt sem hljómaði meira eins og persónulegar hugmyndir hennar sem forystumanns í einum stjórnmálaflokki frekar en eitthvað sem væri til umræðu við ríkisstjórnarborðið. Hún fór t.d. að ræða hvernig þyrfti að taka á þeirri stöðu að það væri allt í einu farið að nota íbúðarhúsnæði sem fjárfestingarkost fyrir fólkið sem ríkisstjórnin skattleggur ekki eins og venjulegt launafólk heldur leyfir að verða ríkt í þessu efnahagsástandi, það þarf því að finna peningunum sínum einhvern stað og gerir það með því að taka íbúðarhúsnæði af almennum íbúðamarkaði. Þetta voru samt persónulegar skoðanir hennar, ekki skoðanir ráðherra. Ég man ekki eftir að hafa heyrt svoleiðis á þessu kjörtímabili að ráðherrar komi og ræði þetta pólitíska stefnuplagg næsta árs út frá sínum persónulegu skoðunum, sem geta kannski nýst í næstu kosningabaráttu frekar en í því hvað ríkisstjórnin ætlar að gera.

Svo kom hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Hann hefur aldrei brunnið sérstaklega fyrir loftslagsmálunum en maður finnur að á lokametrunum er eldurinn kannski enn að dvína. 55% markmiðið um samdrátt í samfélagslosun sem var sett á blað í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir ráðherrann nú að hafi í raun verið óraunsætt, þó að raunin sé að það hafi verið of metnaðarlítið ef við horfum bara til vísindanna. Hann var dálítið svekktur með að hafa útvistað því verkefni til hluta atvinnulífsins að semja aðgerðaáætlun og hafa fengið til baka eitthvað sem skilaði ekki nema 35–45% af þessum 55%. Það væri samt allt í lagi af því að einhvern tímann í framtíðinni myndi verkefnisstjórn taka umsagnir sem væru að berast þessa dagana og gera eitthvað með þær, væntanlega þá eftir tíð ráðherrans í embætti. En allt fannst honum þetta samt í lagi vegna þess að metnaðarlausu prósenturnar sem birtast í aðgerðaáætlun væru meiri en þær alþjóðlegu skuldbindingar sem væri búið að semja um við Evrópusambandið.

Vandinn er náttúrlega að Sjálfstæðisflokkurinn er á harðahlaupum í áttina frá Evrópusambandinu, svo hörðum hlaupum að flokksráð Sjálfstæðisflokksins ályktaði í sumar að það ætti að endurskoða alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Þær eru tvær, annars vegar Parísarsamningurinn sem Donald Trump endurskoðaði þegar hann var forseti Bandaríkjanna og dró Bandaríkin úr, þannig hagar enginn siðaður leiðtogi sér svo að Biden setti Bandaríkin aftur inn í Parísarsamninginn og okkar ráðherra hefur nú viðurkennt að þetta sé ekki planið. Þá stendur eftir Evrópusamstarfið. Þessi flokkur sem einhvern tímann kallaði sig flokk atvinnulífsins áttar sig kannski ekki á því að íslenskt atvinnulíf stólar dálítið mikið á þetta Evrópusamstarf. Íslenskt atvinnulíf vill að EES-samningurinn gangi vel vegna þess að í gegnum hann eigum við stóran hluta af okkar viðskiptum og stóran hluta af okkar rannsóknum, okkar samstarfi á sviði menningar og mennta, en Sjálfstæðisflokkurinn vill endurskoða hluta þess samnings vegna þess að ekki sé tekið nógu mikið tillit til sérstöðu Íslands. Þegar ráðherrann var inntur eftir svörum um hvað hann meinti nákvæmlega með þessu þá gat hann ekki bent á neitt annað en einhverja meinta gullhúðun, sem er ekki eitthvað sem kallar á endurskoðun á alþjóðlegum skuldbindingum heldur bara endurskoðun á því hvernig ráðuneytin semja sín frumvörp. Þetta er áhyggjuefni vegna þess að þetta sýnir svo vel að Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn nánast óstjórntækur. Hann getur ekki komið sér í gegnum einn flokksráðsfund án þess að ólmast svo mikið gegn Evrópusamstarfi að hann segir í rauninni að hann vilji tefla EES-samningnum í voða. Þetta er eitthvað sem ég held að við þurfum að taka haustið í að fá botn í, vegna þess að íslenskt atvinnulíf og íslenskt samfélag á það skilið að heyra hvort flokkurinn ætli þessa leið.

Svo varðandi tekjuhlið frumvarpsins sem við höfum rætt síðustu tvo daga þá þótti mér dálítið áhugavert að þótt við spyrðum tvo eða þrjá ráðherra um stærstu breytinguna sem lögð er til á tekjuhliðinni, algera endurrömmun á því hvernig gjöld eru tekin af ökutækjum og umferð, þá fengum við ekki skýr svör. Það vantar alla heildarmynd vegna þess að það verkefni er brotið niður í nokkur ólík lagafrumvörp, þau enda væntanlega í ólíkum nefndum og koma hvert frá sínum ráðherranum. Hér þarf þingið að setjast vel yfir mál til þess að sjá heildarsviðsmyndina og greina hvort þessi hugmynd ríkisstjórnarinnar muni skila þeim árangri sem sagt er að hún muni gera, en við höfum náttúrlega fengið að reyna á síðustu árum að það er ekki alveg að marka hvað breytingar eru sagðar eiga að gera borið saman við það sem þær gera í rauninni.

Það er margt sem væri hægt að ræða en mig langar að nefna, frú forseti, að út frá stemningunni í stjórnarliðinu sem birtist í því að nú sitjum við í salnum, ég og einn þingmaður Viðreisnar og fylgjum fjármálaráðherra í gegnum kollhríðirnar, stjórnarliðar væntanlega farnir út í sólina, þá mætti kannski breyta slagorði þessa frumvarps til að sefa aðeins hjarta stjórnarliða: Þetta er alveg að klárast, þetta er að verða búið. Það held ég að sé boðskapur sem fólk í stjórnarflokkunum þráir að heyra.