155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[18:38]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Seðlabanki Evrópu lækkaði stýrivexti í vikunni og þeir standa núna í 3,50. Stýrivextir á Íslandi hafa verið yfir 9% í heilt ár. Ég var hér í þingsal áðan að lesa í símanum mínum og sá þá að rétt í þessu var Íslandsbanki að hækka sína vexti og fylgir þar í kjölfar Arion banka sem mér finnst nú gefa ákveðnar vísbendingar um áhrif þessa fjárlagafrumvarps hvað varðar væntingar um verðbólgu. Seðlabanki Íslands hefur hækkað stýrivexti 14 sinnum í röð. Verðbólga hefur verið yfir markmiðum stjórnvalda í heil fjögur ár og samkvæmt spám greiningaraðila er það ekki fyrr en haustið 2026, eftir tvö ár, sem gert er ráð fyrir að verðbólgan nái tilhlýðilegu markmiðum sem eru 2,5%. Það yrði þá eftir tæplega 80 mánaða samfellt verðbólgutímabil sem er með því lengsta í sögunni.

Ég hef áður nefnt hér að vaxtakostnaður heimila í fyrra jókst um heila 39 milljarða. Staðlað svar ríkisstjórnarinnar við þessu ástandi hefur verið eitthvað á þá leið að hávaxtastig sé bara í eðli íslenska kerfisins, íslenska kerfið sé lítið og sveiflukennt og þannig sé það nú bara en nú horfi allt til betri vegar. Aftur vil ég þó nefna það sem fram kemur í fréttum núna á síðustu tveimur dögum, þegar er talað um að allt horfi þetta nú til betri vegar, að Arion banki var í þessari viku að hækka vexti á verðtryggðum lánum. Íslandsbanki var rétt í þessu að senda út fréttatilkynningu um að sama sé í pípunum hjá þeim og það má þá gefa sér hvað gerist hjá þriðja bankanum í kjölfarið. Heimilin eru áfram að fá á sig frekari vaxtahækkanir og það berast fréttir af auknum vanskilum heimila og fjölskyldna og fyrirtækja. Ég óska eftir viðbrögðum hæstv. ráðherra við þessum tíðindum núna, að tveir af stóru bönkunum hafi verið bara núna á liðnum dögum að hækka vexti enn frekar á heimilin.

Frú forseti. Mér finnst skipta máli þegar við erum að ræða þessa ógnarháu vexti á húsnæðislánum og lánum á Íslandi að við spyrjum hér í þessum þingsal hvers vegna það er lögmál að vextir á lánum eru alltaf svona háir á Íslandi. Það þarf að hafa pólitískan metnað til að ræða þessa lykilspurningu: Hvers vegna eru vextir á Íslandi alltaf langtum hærri en í þeim löndum sem við berum okkur saman við, ekki bara núna heldur alltaf? Ég ætla ekki að halda því fram að það sé eitt svar við því en við blasir að það þarf að ræða hvaða þátt örgjaldmiðillinn okkar leikur í þessari stöðu.

Frú forseti. Það er ekki aðeins svo að Íslendingar búi við háa verðbólgu og hátt vaxtastig. Viðreisn hefur lengi bent á að skattbyrði venjulegs fólks á Íslandi er há. Um það bil önnur hver króna sem hagkerfið skapar fer í skatta eða lífeyrissjóði og þetta er með því hæsta sem þekkist í alþjóðlegum samanburði. Um 70% allra álagðra skatta og gjalda eru síðan borin af þriðjungi þjóðarinnar. Í einfaldri mynd má segja sem svo að þetta sé millistéttin á Íslandi annars vegar og fyrirtækin. Þegar við horfum á það hversu hátt skattstigið og skattbyrðin er á Íslandi þá vekur það nokkra furðu að við séum ekki að skila opinberri þjónustu sem stenst samanburð við kerfi annars staðar á Norðurlöndunum. Það er einfaldlega ekki staðan þegar við skoðum innviði og þjónustu við fólkið í landinu.

Stór ástæða þess að háir skattar eru ekki að skila fólkinu í landinu betri þjónustu en raun ber vitni er ævintýralega þungur vaxtakostnaður íslenska ríkisins sem stafar a.m.k. að hluta til af íslensku krónunni. Það er staðreynd að lítill gjaldmiðill kostar meira en stór. Ein af alvarlegum aukaverkunum lítils gjaldmiðils er nefnilega að af honum hlýst meiri kostnaður en af stærri. Það eru þess vegna ekki bara fjölskyldur og heimili á Íslandi og fyrirtæki sem finna núna fyrir háum vöxtum. Íslenska ríkið er í sömu stöðu. Fjórði stærsti útgjaldaliður íslenska ríkisins er vaxtakostnaður. Kostnaður af lánum ríkisins í ár er um 70 milljarðar og samkvæmt fjárlagafrumvarpi er þessi tala yfir 100 milljarðar. Samt er Ísland ríki sem í alþjóðlegum samanburði skuldar ekki brjálæðislega mikið. Lán íslenska ríkisins eru hins vegar fáránlega dýr. Þess vegna verðum við í fjárlagaumræðu að ræða um kostnaðinn af skuldum þótt flestir stjórnmálaflokkar forðist það samtal. Í staðinn vilja flokkar ræða tilfærslukerfi og bætur sem eiga að vera einhvers lags skaðaminnkandi úrræði vegna galins kostnaðar af vöxtunum. Hvers vegna vilja þessir flokkar ekki frekar ræða rót vandans en að einblína eingöngu á afleiðingarnar? Þetta eru sturlaðar upphæðir sem hafa alvarleg áhrif á getu ríkisins til að styrkja heilbrigðiskerfi og velferð og birtingarmyndirnar eru fleiri: Ástand vegakerfisins, fáliðuð löggæsla, geta ríkisins til að veita þjónustu við börn, börn með fjölþættan vanda, börn sem eru árum saman á biðlistum eins og við sáum í frétt Morgunblaðsins í dag og í spurningum umboðsmanns barna.

Fólk á Íslandi þráir stöðugleika. Kaupmáttur launa á Íslandi hefur almennt séð verið góður. Ég ætla ekki að skipa mér í sveit þeirra þingmanna í stjórnarandstöðu sem tala um að allur efnahagur á Íslandi sé slæmur. Það er ekki þannig, alls ekki. En þegar við horfum á alþjóðlegan samanburð þá eru alltaf nokkrar breytur sem öskra á okkur. Kaupmáttur hefur almennt séð verið góður en hann hefur sveiflast fjórum sinnum meira á Íslandi en í öðrum OECD-löndum bara núna frá aldamótum. Hvað þýðir það? Niðursveiflurnar bitna á fólki, þær bitna einna harðast á ungu fólki sem færir núna fjármagn til eldri kynslóðanna í gegnum fasteignamarkaðinn. Hugmyndir ríkisstjórnarinnar núna um að fjarlægja það úrræði að fólk fái að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á húsnæðislán eru að mínum dómi fáránlegar í þessu ljósi. Harkaleg og óþörf aðgerð gagnvart heimilunum núna, óþarflega harkaleg skilaboð gagnvart millistéttinni. Flestu ungu fólki er í dag ómögulegt að kaupa íbúð ef foreldrar geta ekki hjálpað til og ungt fólk á auðvitað að geta eignast íbúð án þess að kaupa hana með foreldrum sínum eða þurfa að eiga sterkt bakland. En staðan er sú að næstum öllum kostnaði af verðbólgu og vaxtahækkunum hefur verið velt yfir á ungt fólk og barnafjölskyldur og minni fyrirtæki sem fá árið 2025 á sig skattahækkun.

Ríkisstjórnin heldur því ævinlega til haga í umræðu um mjög langvarandi verðbólgu á Íslandi og vaxtastig á heimsmælikvarða að við verðum að muna eftir hagvextinum. En það skiptir líka máli að skoða hvers eðlis hagvöxturinn á Íslandi er. Hann byggist fyrst og fremst á mikilli fólksfjölgun sem er líka helsta ástæða þess að raunverð húsnæðis hefur tvöfaldast á Íslandi á síðustu tíu árum. Hagvöxtinn þarf auðvitað að skoða út frá þessum breytum. Hvernig er hann að mælast á mann? Hvers eðlis er hagvöxturinn? Á Íslandi er munurinn á hagvexti og hagvexti á mann mikill og þetta er ástæða þess að fólk finnur ekki sérstaklega fyrir honum. Hröð fólksfjölgun hefur haft veruleg áhrif á eftirspurn eftir húsnæði og markaðurinn ræður sem stendur ekki við að mæta þörfinni fyrir húsnæði. Þess vegna þarf að setja frekari mörk á byggingu fyrir gistirými í þéttbýli, skýrari reglur um Airbnb, ekki síst hérna á höfuðborgarsvæðinu.

Frú forseti. Þunginn í efnahagsumræðunni núna er auðvitað litaður af stöðu verðbólgu og vaxta og þessi fjárlög hafa mikla þýðingu. Tíðindi berast af vanskilum heimila. Vextir hafa verið ógnarháir til lengri tíma og eftir stendur, eins og ég nefndi hérna áðan, að vextir á Íslandi eru alltaf háir og alltaf hærri en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman. Við verðum að hafa þrek og þor til að ræða þá grundvallarspurningu sem að baki býr: (Forseti hringir.) Hvers vegna er það? Hvers vegna er það lögmál að vextir á Íslandi eru alltaf þetta háir? Flokkar sem neita (Forseti hringir.) að taka þátt í þeirri umræðu verða þá að útskýra fyrir almenningi hvernig við höfum efni á því að líta fram hjá svona stóru álitaefni.