ummæli vararíkissaksóknara og afskipti ráðherra af brottvísun hælisleitanda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir nokkuð margar spurningar sem krefjast ítarlegs svars að hans mati og mér er það til efs að mér dugi sá tími sem mér er skammtaður til að svara þeim öllum. Ég held að ég hafi farið nokkuð ágætlega yfir mál vararíkissaksóknara í fjölmiðlum í síðustu viku. Það er afstaða mín, og það hefur komið fram, að ummæli vararíkissaksóknara hafi ekki aðeins verið óviðeigandi heldur í ósamræmi við þá stöðu sem hann gegnir innan stjórnkerfisins og við það stend ég. Þau voru sömuleiðis til þess fallin að grafa undan trúverðugleika embættisins. En það var mat mitt eftir að hafa skoðað málið í heild, eftir að hafa leitað ráðgjafar bæði í ráðuneyti mínu sem og hjá tveimur lögfræðistofum, að þessi mörk tjáningarfrelsisins væru óljós. Sú ákvörðun sem ég stóð frammi fyrir gat haft verulega íþyngjandi afleiðingar fyrir þann embættismann sem þarna um ræðir og því tók ég þá ákvörðun að gæta meðalhófs og víkja honum ekki úr starfi um stundarsakir. Síðan höfum við séð að það ber ekki öllum saman, það ber ekki öllu löglærðu fólki saman um það hvar þessi mörk tjáningarfrelsis liggja en ég efast ekki um að hv. þingmaður sé með það á takteinum.