155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

ummæli vararíkissaksóknara og afskipti ráðherra af brottvísun hælisleitanda.

[15:11]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Snemma í morgun hóf heimferðardeild ríkislögreglustjóra það verkefni að framfylgja brottflutningi á einstaklingi, fylgja hér palestínskri fjölskyldu til Spánar þar sem verndarumsókn þeirra á réttilega heima. Áður en lagt var af stað frá Keflavíkurflugvelli barst mér beiðni frá félags- og vinnumarkaðsráðherra um að þessari framkvæmd yrði frestað vegna þess að hann óskaði eftir að fá að ræða þetta tiltekna mál í ríkisstjórn. Ég ákvað að verða við þeirri beiðni og lagði þess vegna fyrir ríkislögreglustjóra að fresta för um sinn. Það breytir því þó ekki að ákvörðun um brottflutning stendur, en framkvæmdinni á þessum brottflutningi hefur verið frestað.