rekstur Sjúkrahússins á Akureyri.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir að taka þetta mál. Við hv. þingmaður höfum tekið þessa umræðu áður og svo að ég svari spurningunni strax: Nei, það stendur auðvitað ekki til að láta eitthvað fjara undan eins og hv. þingmaður orðaði það. Það er svo fjarri því. Það eru margir mjög góðir hlutir að gerast fyrir norðan eins og hv. þingmaður veit og hann ætti nú kannski inn á milli að eyða orkunni í að tala um það sem vel er gert í hans kjördæmi frekar en að fara endalaust með sömu rulluna um að það sé að fjara eitthvað undan.
Já, það verður áskorun til framtíðar að tryggja sérfræðilækningar úti á landi og fyrir norðan líka. Ég vil nefna samvinnu sjúkrahúsanna tveggja, sem við höfum verið að efla í samtali, og stuðning við heilbrigðisstofnanir, sérstaklega á viðkvæmum svæðum eins og Vestfjörðum og Austurlandi. Við þurfum að horfa inn í aukna samvinnu á milli sjúkrahúsanna tveggja í flóknustu aðgerðunum og ég tek undir með hv. þingmanni að það er sérstaklega mikilvægt í krabbameinsgöngudeildarþjónustunni að við höldum því góða starfi sem hefur verið þar. Við erum að tala um rúmlega 12 milljarða umfang í rekstri og það getur staðið undir býsna góðum rekstri eins og hefur verið hingað til. Við höfum unnið mjög náið með sjúkrahúsinu þegar kemur að fjármögnunarþættinum.
Svo vil ég nefna varðandi geðheilbrigðisþjónustuna að þar höfum við tekið upp aukna samvinnu á milli Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Sjúkrahússins á Akureyri til að styrkja BUG og ég myndi segja að staðan í heilbrigðisþjónustunni í heildina tekið sé miklu öflugri en hún var og hún muni styrkjast í gegnum þessa samvinnu sem hefur verið tekin upp á milli þessara tveggja öflugu stofnana.