húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.
Virðulegi forseti. Mig langar að ræða hér húsnæðisliðinn í vísitölu neysluverðs. Það er gömul saga og ný að húsnæðisverð á Íslandi er í engu samhengi við aðra verðlagsþróun. Húsnæðisverð hefur sjöfaldast frá aldamótum, þar af tvöfaldast á síðustu tíu árum. Húsnæðisverð hefur því átt mikinn þátt í þeirri verðbólgu sem við höfum upplifað síðustu ár og það er ljóst að ef ekki væri fyrir þennan húsnæðislið væri verðbólgan 3,6% en ekki liðlega 6%. Tuttugu þjóðir Evrópu halda húsnæðinu utan neysluvísitölu og það er einnig ljóst að ef við myndum afnema húsnæðisliðinn og verðbólga færi í 3,6%, undir efri vikmörk Seðlabankans, færu stýrivextir fljótt að lækka. Heimili landsins eru að drukkna í feni stökkbreyttrar greiðslubyrði húsnæðislánanna. Lán sem áður voru vel viðráðanleg bera nú allt að þrefalda greiðslubyrði. Við verðum að gera allt sem við getum til að bjarga fjölskyldum þessa lands frá afleiðingum svimandi hárra stýrivaxta. Það er ekki svo að einhver hagfræðileg lögmál óumdeild sýni fram á að við verðum að taka húsnæði með í reikninginn þegar við mælum verðbólgu. Þvert á móti eru dæmi um að hagfræðingar hafi kallað eftir því að við afnemum húsnæðisliðinn, til að mynda Óttar Guðjónsson nú síðast fyrir nokkru, og einnig var það eitt af umfjöllunarefnum skýrslu um framtíð íslenskrar peningastefnu þar sem sátu meðal annarra Ásgeir Jónsson, núverandi seðlabankastjóri, Illugi Gunnarsson, fyrrum menntamálaráðherra, og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi. Þar sagði, með leyfi forseta:
„Starfshópurinn vill í þessu efni taka þá grundvallarafstöðu að húsnæðisverð eigi ekki heima í verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.“
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra: Hvers vegna tökum við ekki húsnæðisliðinn út úr vísitölu neysluverðs, almenningi til mikilla hagsbóta á þessum viðsjárverðu tímum?