155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[15:22]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er komið inn á nokkuð stórt mál sem á sér marga fleti og margar hliðar. Við skulum muna í þessari umræðu að við tókum til endurskoðunar samsetningu á húsnæðisliðnum fyrr á þessu ári þegar við gerðum breytingar á hinni reiknuðu húsaleigu. Um þetta hefur Hagstofan skrifað nokkra greinargerð og þær mælingar sem við sjáum á verðbólgu í dag eru að mestu byggðar á gögnum sem söfnuðust saman yfir tíma fyrir þessa breytingu. Hér er velt upp þeirri spurningu hvers vegna við tökum hreinlega húsnæðisliðinn ekki alfarið út úr vísitölunni. Eftir því sem ég best veit þá er það hvergi þannig að vísitala neysluverðs sé reiknuð án alls tillits til húsnæðisliðar. Önnur spurning væri: Hvers vegna er Seðlabankinn með verðbólgumarkmið sem hefur húsnæðisliðinn inni? Það er önnur spurning sem væri þá ekki að horfa til vísitölu þeirrar sem innifelur húsnæðisliðinn.

Ég held að það sé hyggilegast fyrir okkur að gera engar skyndilegar breytingar á þessu heldur vanda okkur og það er það sem við vorum að gera þegar síðustu breytingar voru gerðar á vísitölunni og ég vísa um það til hinnar reiknuðu húsaleigu. Það sem mér finnst hins vegar vera stærsta álitamálið við þær aðstæður sem hafa skapast núna er þetta hér: Eru háir vextir Seðlabankans líklegir til þess að ná niður húsnæðisverðinu á Íslandi, þ.e. þeim þætti vísitölu neysluverðs sem borin er uppi af húsnæðisliðnum? Eins og vikið var að er verðbólgan að öðru leyti án húsnæðisliðarins 3,6% (Forseti hringir.) og þá hlýtur að standa eftir þessi spurning: Eru háir vextir almennt líklegir til að geta haft áhrif til lækkunar á hinn þátt vísitölunnar? (Forseti hringir.) Það er mjög stór spurning en fyrir liggur að Seðlabankinn hefur auðvitað í hendi sér að meta það sjálfur.