húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.
Virðulegur forseti. Það er þetta með fjármagnstekjuskattinn af verðbótum — þetta er mjög ágæt ábending hjá hv. þingmanni — sem við tókum til skoðunar og gerðum breytingar á hér fyrir nokkrum árum síðan. Þannig var í ríkisstjórninni sem var mynduð 2017 rætt um að hækka fjármagnstekjuskattsprósentuna en á sama tíma vildum við endurmeta skattstofninn og meðal þess sem við skoðuðum sérstaklega var einmitt þessi þáttur sem á endanum varð til þess að við hækkuðum frítekjumarkið í fjármagnstekjuskatti einstaklinga með þeim hætti að langfæstir greiðenda eða gjaldenda eru að greiða fjármagnstekjuskatt vegna frítekjumarksins af verðbótaþættinum. Kolefnisgjaldið leggst auðvitað á eldsneytið en er ekki til staðar ef fólk er t.d. að nota raforku til að knýja ökutæki sín. Þannig að þar er kominn hvati. Það hefur áhrif á verð orkunnar sem notuð er.