155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

stefna stjórnvalda í málefnum hælisleitenda .

[15:32]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir nokkuð skýrt svar þar sem hæstv. ráðherra hefur endurtekið það að markmiðið sé fyrst og fremst að fækka hælisumsóknum. Ég ítreka það sem ég sagði: Það þýðir ekki að þeir einstaklingar sem þá sækja ekki hér um en hefðu annars gert það séu ekki í neyð. Hæstv. ráðherra afhjúpar hér misskilning sem ég held að sé útbreiddur í ríkisstjórninni í þessum málaflokki, þ.e. að það sé einhver stór hluti þeirra sem hingað leita sem er ekki í raunverulegri neyð. Ég skil orð hæstv. ráðherra með þeim hætti að hún telji einstaklinga á borð við Yazan Tamimi ekki vera í raunverulegri neyð. Kostnaðurinn sem hefur aukist gríðarlega í þessum málaflokki á undanförnum árum er einmitt fyrir tilstilli þessarar stefnu. Það kostar ekkert mikið að leyfa fólki að byggja upp líf og raunar hefur ríkisstjórnin það að stefnu sinni að laða hér að fólk sem getur tekið þátt í samfélaginu og unnið og hjálpað okkur að byggja upp þá innviði sem við þurfum til að halda samfélaginu gangandi. (Forseti hringir.) Kostnaðurinn fer í það að hafna fólki, senda því skilaboð í gríðarlega þungum málum. Það að hafna einstaklingi (Forseti hringir.) sem augljóslega er í þörf fyrir vernd kostar gríðarlega peninga vegna þess að það er rangt. Það er það sem kostnaðurinn er að fara í. (Forseti hringir.) Ég vil ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra: Er þetta það eina sem ykkur gengur til, að senda skilaboð?