stefna stjórnvalda í málefnum hælisleitenda .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningu. Já, það hafa verið send skilaboð um að hér séum við búin að breyta lögum um útlendinga. Já, það hafa verið send skilaboð um það að við ætlum að útrýma séríslenskum málsmeðferðarreglum. Já, það hafa verið send út skilaboð um það að við viljum fækka hér umsóknum, að við viljum tryggja brottflutning þeirra sem ber að yfirgefa Schengen-svæðið og við ætlum að draga saman í þessum málaflokki þau fjárútlát sem hafa verið í honum.
En svo ég fái að koma að málinu sem hv. þingmaður nefnir hér og hefur verið í fréttum í dag þá vil ég fá að ítreka að það mál hefur fengið lögbundna málsmeðferð á tveimur stjórnsýslustigum og ég ber traust til kerfisins. (ArnG: Á grundvelli ykkar stefnu.)(BLG: Ykkar laga.) Það hefur fengið lögbundna málsmeðferð (Forseti hringir.) á tveimur stjórnsýslustigum. Það hefur komið niðurstaða og það var ákveðið að fresta framkvæmd í morgun en niðurstaðan stendur.