aukinn vaxtakostnaður og úttekt séreignarsparnaðar.
Forseti. Vaxtakostnaðar heimila jókst um meira en 30 milljarða í fyrra. Fórnarkostnaður fólks er mikill af þessum ævintýralega háum vöxtum sem við búum við. Viðreisn hefur aftur og aftur talað um þessa stöðu hér í þessum sal, þessa ógnarháu vexti sem almenningur á Íslandi býr við í öllum alþjóðlegum samanburði. Vextir á Íslandi eru á pari við það sem þekkist í stríðshrjáðum ríkjum. Verðbólga núna hefur verið yfir markmiði í heil fjögur ár og það er reyndar ekki fyrr en haustið 2026 sem gert er ráð fyrir að verðbólga geti náð þessum 2,5% markmiðum Seðlabankans. Það yrði þá eftir næstum 80 mánaða samfellt verðbólgutímabil. Það er með því lengsta í sögunni og fólkið sem er að díla við erfið húsnæðislán fær þau skilaboð frá ríkisstjórninni að ætlunin sé að hrifsa burt það úrræði að geta nýtt séreignarsparnað til að greiða inn á húsnæðislán. Og ég spyr: Hvaða pólitísku skilaboð eru það gagnvart millistéttinni? Ég segi millistéttinni því að þetta er úrræði sem launafólk notfærir sér. Það hefur verið talað um að þetta sé úrræði sem nýtist sterkefnuðu stóreignafólki, eins og moldríkt fólk sé mikið með húsnæðislán á fasteignum sínum eða stóreignafólk lifi af launum en ekki fjármagnstekjum. Sterkefnað stóreignafólk borgar ekki í lífeyrissjóði af fjármagnstekjum sínum. Það er launafólk sem það gerir. Það er venjulegt millistéttarfólk sem finnur fyrir því að þessi heimild hverfi og þetta úrræði hefur reynst vel. Upphæðirnar hafa verið þær sömu í næstum áratug, hafa sem sagt lækkað verulega að raunvirði, og önnur úrræði sem fyrir hendi eru nýtast eðlilega fyrst og fremst lágtekjuhópum; húsnæðisbætur, vaxtabætur, barnabætur. Hér er eitt úrræði sem fer aðeins lengra upp tekjustigann og hvað með það? Ég spyr einfaldlega: Má ekkert gera fyrir millistéttina?