aukinn vaxtakostnaður og úttekt séreignarsparnaðar.
Virðulegi forseti. Skattfrjáls úttekt séreignarsparnaðar var kosningamál Sjálfstæðisflokksins 2013 og hluti af meiri háttar aðgerðum okkar til að leiðrétta skuldastöðu heimilanna. Þar fóru saman skuldaleiðréttingin annars vegar og svo skattfrjáls úttekt séreignarsparnaðar hins vegar sem við á þeim tíma töldum geta verið svona 70–80 milljarða úrræði hvort um sig. Það voru margir sem efuðust og flestir þeirra sem höfðu efasemdir sögðu að þetta nýttist fyrst og fremst þeim tekjuhærri. En við höfum staðið með þessu úrræði síðan og gert ýmsar breytingar. Við höfum t.d. gert úrræðið varanlegt fyrir fyrstuíbúðarkaupendur. Fyrir þá virkar það þannig að þeir geta í tíu ár safnað séreignarsparnaði og tekið hann skattfrjálst út til inngreiðslu á húsnæðislán. Í millitíðinni höfum við sömuleiðis búið til nýtt sérstakt sparnaðarúrræði í lífeyriskerfinu, sem heitir tilgreind séreign, sem sömuleiðis má taka út í þeim tilgangi að greiða inn á fyrstu fasteignakaup. Bæði þessi úrræði gilda í tíu ár. Við höfum nýlega tekið ákvörðun, í góðri sátt við vinnumarkaðinn, um að framlengja hina almennu heimild til úttektar á séreignarsparnaði, skattfrjálst, út árið 2024 í þeim tilgangi að þeir sem hafa verið að nýta úrræðið geti allir nýtt úrræðið í tíu ár.
Nú stendur svo á, eins og hv. þingmaður lýsti ágætlega, að vaxtakostnaður heimilanna er töluverður og þess vegna hefur fjármálaráðherra sagt að hann sé að skoða leiðir til að bregðast við en ákvörðun um að framlengja hið almenna, eða við skulum segja hið sértæka úrræði út árið 2024 var tekin í fyrra. Þetta eru lögin eins og þau standa. Verði gripið til þess að framlengja úrræðið enn frekar, annaðhvort tímabundið eða með öðrum hætti, þá mun að mínu áliti þurfa að taka afstöðu til þess hvort tíu ára reglan eigi eingöngu að gilda fyrir fyrstuíbúðarkaupendur en ekki fyrir aðra, vegna þess að margir hafa nú þegar í tíu ár (Forseti hringir.) tekið út skattfrjálst séreignarsparnað til innborgunar á höfuðstól og afborganir, eftir atvikum, húsnæðislána.