aukinn vaxtakostnaður og úttekt séreignarsparnaðar.
Virðulegur forseti. Svo að ég komi því að þá hefur úrræðið leitt til þess að um 130 milljarðar kr. hafa farið inn á húsnæðislán frá því að það var lögfest. Ég vil leggja áherslu á það fyrir alla þá sem hlusta á þessa umræðu og hafa áhuga á þessu máli, svo að það sé alveg skýrt, að það er engin breyting að verða á heimildum til úttektar á séreignarsparnaði vegna fyrstu íbúðarkaupa. Það er mjög mikilvægt að það sé alveg skýrt. Breytingin sem hv. þingmaður tengir við fjárlagafrumvarpið er reyndar breyting sem við lögfestum í fyrra og varðaði kjarasamninga og þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að framlengja úrræðið út árið 2024. Þetta er því ekki lagabreyting sem tengist beinlínis fjárlagafrumvarpinu heldur eru fjárlögin bara að lýsa lögunum eins og þau eru að þessu leytinu til. Fjármálaráðherra hefur sagt um þetta að málið sé til skoðunar. Ég styð að það verði skoðað vegna þess að ég tel að það geti áfram nýst mjög vel fyrir þá sem ella myndu sjá úrræðið renna sitt skeið í lok árs. Fram að því að þeirri endurskoðun eða athugun er lokið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu (Forseti hringir.) þá get ég í sjálfu sér ekki mikið meira sagt en þetta: Ég styð að það verði skoðað að finna úrræði til að standa áfram með þessu fólki.