viðbragðsáætlanir og brunavarnir í samgöngumannvirkjum.
Virðulegi forseti. Á föstudaginn síðastliðinn brann rúta um 500 metrum frá gangamunna Vestfjarðaganga. 60 manns voru í rútunni og allir gengu heilir frá borði en rútan varð alelda á skammri stundu og var lítt við ráðið og er því eignatjón töluvert. Svartan og mikinn reyk lagði frá rútunni og það sló óhug að okkur sem urðu áhorfendur að slysinu að hugsa til þess hvaða endi þetta hefði getað haft, hefði rútan verið stödd inni í jarðgöngunum þegar kviknaði í henni. Þá hefðu aðstæður verið aðrar og mun alvarlegri.
Mig langar að beina fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra á þeim forsendum að samkvæmt gildandi regluverki um brunavarnir í samgöngumannvirkjum þá ber eigandi samgöngumannvirkis ábyrgð á brunavörnum í þeim og einnig ábyrgð á að brunavarnir séu virkar og að haft sé reglubundið eftirlit með þeim. Fyrir sérhvert samgöngumannvirki skal vera til viðhaldsáætlun þar sem gerð er grein fyrir viðhaldi alls búnaðar sem varðar öryggi vegfarenda. Viðhald öryggisbúnaðar skal vera í höndum viðurkenndra fagaðila. Samkvæmt sömu reglugerð skal vera viðhaldsáætlun þar sem gerð er grein fyrir viðhaldi alls búnaðar og varðar öryggi vegfarenda. Á Íslandi eru 12 jarðgöng, mislöng, hönnuð og gerð á mismunandi tíma. Vestfjarðagöng eru samtals 9 km, þar af eru einungis 2 km tvíbreiðir. Að innan er nokkuð um að þau séu klædd efni sem varnar leka í göngum. Það efni er óvarið og bruni í þeim getur skapað alvarlegar eiturgufur og nóg er nú samt.
Því spyr ég hæstv. innviðaráðherra: Eru viðbragðsáætlanir, sem og áhættumat, vegna jarðganga reglulega uppfærðar? Er til viðeigandi búnaður, bílar og tæki, þar með talið súrefnisbirgðir hjá slökkviliði þess sveitarfélags þar sem eru jarðgöng samkvæmt öryggisstöðlum? Er eftirlit af hálfu ríkisins með því að slökkviliðsæfingar séu haldnar reglulega í jarðgöngum á Íslandi? (Forseti hringir.) Ef svo er, hversu reglulegar eru þær?