breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér með fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á allmörgum lögum í samræmi við forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2025. Efnisatriði þess eru af margvíslegum toga og hafa þau bæði áhrif á tekju- og gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins. Ég mun nú fjalla nokkuð ítarlega um þau atriði sem mestu máli skipta ásamt fjárhagsáhrifum þeirra en sú yfirferð er ekki endilega í þeirri röð sem er að finna í frumvarpinu.
Fyrst um verðlagsuppfærslu krónutöluskatta og gjalda. Í frumvarpinu eru tillögur sem miða við að krónutöluskattar hækki um 2,5% í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands þrátt fyrir að verðbólga sé nú áætluð 5,2% á þessu ári samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Hækkunin nær til áfengis- og tóbaksgjalda, bifreiðagjalds, gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra og útvarpsgjalds. Hér er um að ræða aðgerð stjórnvalda á tekjuhlið ríkisfjármálanna sem tekur mið af samkomulagi ríkis og sveitarfélaga í tengslum við langtímakjarasamninga á vinnumarkaði í mars síðastliðnum. Í samkomulaginu kemur fram að til að stuðla að verðstöðugleika muni ríki og sveitarfélög halda aftur af gjaldskrárhækkunum og gjaldskrár ríkis almennt ekki hækka umfram 2,5% á árinu 2025.
Áætlað er að verðlagsuppfærslan skili ríkissjóði samtals um 1,4 milljörðum kr. og af því nemur hækkun útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra samtals 243 millj. kr. en þau gjöld hafa ekki áhrif á vísitölu neysluverðs. Áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs eru áætluð 0,04%. Ekki er gert ráð fyrir hækkun á vörugjaldi af bensíni, olíugjaldi og kílómetragjaldi í þessu frumvarpi þar sem til stendur að fella þau gjöld niður í tengslum við upptöku kílómetragjalds vegna notkunar ökutækja, í öðru frumvarpi sem kemur síðar í haust. Jafnframt verður kveðið á um breytingar á kolefnisgjaldi í því frumvarpi.
Í frumvarpinu er lagt til að gjöld vegna Fjármálaeftirlits og skilavalds Seðlabankans taki breytingum, að mestu leyti til hækkunar, nema hvað hlutfallsleg greiðsla viðskiptabanka, vátryggingafélaga og lífeyrissjóða lækkar örlítið. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur Seðlabankans og kveður stofnunin þær skýrast af almennum verðlagshækkunum á árinu 2024 og spá fyrir verðlags- og launaþróun á næsta ári.
Gjöldin eru ýmist ákvörðuð sem hlutfall af eignum eða tekjum eftirlitsskyldra aðila eða sem föst fjárhæð. Áætlaður rekstrarkostnaður Fjármálaeftirlitsins árið 2025 er 3.357 millj. kr. Áætlað eftirlitsgjald vegna fjármögnunar Fjármálaeftirlitsins sama ár er 3.298 millj. kr. og áætlað er að aðrar tekjur verði 59 millj. kr. Áætlað gjald vegna fjármögnunar skilavalds er 94,5 millj. kr. sem endurspeglar áætlaðan rekstrarkostnað þess árið 2025. Áætluð gjöld hækka því um 6,57% milli ára sem er raunlækkun miðað við meðalverðbólgu á tímabilinu.
Greiðsla kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Lögð er til lækkun á gjaldhlutfalli af álagningarstofni samkvæmt lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Gjaldinu er ætlað að standa undir kostnaði við rekstur stofnunarinnar og er lagt á gjaldskylda aðila. Í lögunum er kveðið á um að tekið skuli tillit til rekstrarafgangs eða rekstrartaps af starfsemi umboðsmanns skuldara við ákvörðun á fjárhæð gjalds fyrir næsta almanaksár. Útlán gjaldskyldra aðila 31. desember 2023 voru um 4.997 milljarðar kr. og áætlaður kostnaður vegna reksturs umboðsmanns skuldara var um 350 millj. kr. Álagningarprósentan verður því 0,007% á árinu 2025. Álagningarstofn gjaldsins er öll útlán gjaldskyldra aðila.
Þá er lagt til ákvæði til bráðabirgða við lög um málefni aldraðra. Er það gert til að koma í veg fyrir að kostnaðarþátttaka heimilismanna á dvalar- og hjúkrunar¬heimil¬um aukist við það að tenging við tekjur maka var afnumin. Jafnframt er lagt til að gildistími ákvæðis til bráða¬birgða í lögunum verði framlengt. Það leiðir til þess að heimilt verður að verja fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra til að standa straum af rekstrarkostnaði hjúkrunarrýma fyrir aldraða á árinu 2025. Hvor tveggja eru góðkunningjar sem þingmenn þekkja, koma hér árlega.
Lagt er til að B-deildum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Brúar lífeyrissjóðs verði ekki gert skylt að eiga eignir í sama gjaldmiðli og skuldbindingar sem jafngilda væntum lífeyrisgreiðslum sameignarhluta sjóðanna til næstu þriggja ára eins og gildir um lífeyrissjóði almennt. B-deildir lífeyrissjóðanna eru ekki að fullu fjármagnaðar og að mestu leyti gegnumstreymissjóðir þar sem deildirnar eru lokaðar fyrir nýliðun. Þannig er innflæði iðgjalda minna en útflæði greiðslna sem leiðir til þess að eignir deildanna minnka jafnt og þétt. Þá njóta B-deildir sjóðanna bakábyrgðar ríkis og sveitarfélaga. Þar sem B-deildir sjóðanna eru í útgreiðsluferli er ljóst að sú staða mun innan tíðar koma upp að eignir þeirra í innlendum gjaldmiðli standa ekki undir væntum lífeyrisgreiðslum til næstu þriggja ára og því er þessi breyting lögð til. Verði ekkert að gert kann hlutfallslegt vægi eigna með lægri væntri ávöxtun að aukast sem getur valdið því að ríkissjóður og sveitarfélög þurfa að standa skil á hærri fjárhæðum sem bakábyrgðaraðilar að öllu óbreyttu.
Í frumvarpinu er enn fremur lögð til framlenging á ákvæðum til bráðabirgða í átta mánuði til að sporna gegn því að víxlverkanir örorkubóta almannatrygginga og örorkulífeyris lífeyrissjóða hefjist að nýju en nýtt greiðslukerfi almannatrygginga mun taka gildi 1. september 2025 eins og þingmenn þekkja.
Þá er gert ráð fyrir að fjárhæð frítekjumarks vegna atvinnutekna örorkulífeyrisþega við útreikning tekjutryggingar og heimilisuppbótar verði óbreytt fram að gildistöku nýs greiðslukerfis örorku, eða til og með 31. ágúst 2025. Frítekjumarkið er nú 2,4 millj. kr. á ári sem jafngildir 200 þús. kr. á mánuði. Verði það ekki framlengt mun frítekjumark örorkulífeyrisþega vegna atvinnutekna lækka úr 2,4 millj. kr. á ári í 300 þús. kr. og leiða til lækkunar bóta hjá þeim örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum sem hafa atvinnutekjur yfir frítekjumarkinu. Að óbreyttu ákvæði hefðu útgjöldin lækkað um 1,7 milljarða kr. á árinu 2025.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að almennt frítekjumark ellilífeyrisþega hækki úr 300 þús. kr. á ári í 438 þús. kr. á ári frá og með 1. janúar 2025. Almennt frítekjumark ellilífeyrisþega hefur ekki hækkað frá upptöku þess árið 2017, en það nemur 25 þús. kr. á mánuði. Frá sama tíma hafa bætur almannatrygginga hækkað um 45,6% og þykir sanngjarnt að almenna frítekjumarkið fylgi þeirri þróun. Það verður því 438 þús. kr. á ári eða 36.500 kr. á mánuði í stað 25 þús. kr.
Gert er ráð fyrir að föst krónutala sóknargjalda lækki úr 1.192 kr. á mánuði samkvæmt gildandi lögum í 1.133 kr. fyrir árið 2025. Lögboðið framlag til sókna þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga breytist að öllu jöfnu í samræmi við áætlaða breytingu á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga 16 ára og eldri, sem og fjölgun einstaklinga. Nú er hins vegar, eins og í fjárlögum fyrir árið 2024, með breytingu á lögum um sóknargjöld, gert ráð fyrir að fastsetja fjárhæð sóknargjalda. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 3.230,3 millj. kr. framlagi til þeirra liða sem sóknargjald reiknast á að teknu tilliti til almennra aðhaldskrafna í forsendum frumvarpsins og nemur heildarlækkun sóknargjaldsins frá gildandi fjárlögum því 153,6 millj. kr.
Lækkunin kemur til af því að við yfirferð fjárlagafrumvarps fyrir árið 2024 gerði Alþingi tillögu um 241,1 millj. kr. tímabundna hækkun sóknargjalda í samræmi við tillögur efnahags- og viðskiptanefndar í frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2024 var gert ráð fyrir því að sóknargjöld yrðu 1.107 kr. á mánuði, en eftir tillögu Alþingis var gert ráð fyrir 85 kr. hækkun á sóknargjöldum sem leiddi alls til 241,1 millj. kr. hækkunar. Nú hefur þessi tímabundna hækkun verið felld niður, hún var einungis til eins árs.
Þá er gert ráð fyrir að fjárhæð losunargjalds, vegna hvers tonns gjaldskyldrar losunar, í kafla sem fjallar um gjaldskylda losun gróðurhúsalofttegunda, úrvinnslugjald og skilagjald, verði lækkað úr 12.312 kr. í 10.511 kr. til samræmis við breytingar á meðalverði losunarheimilda á Evrópska efnahagssvæðinu eins og það er á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður. Jafnframt eru lagðar til breytingar á fjárhæð úrvinnslugjalds á ýmsar umbúðir, leysiefni, málningu, prentliti, rafhlöður og kælitæki. Auk þess sem lagt er til að skilagjald á innfluttar drykkjarvörur í einnota umbúðum úr stáli, áli, gleri og plastefni hækki úr 20 kr. á einingu í 22 kr. á einingu um næstu áramót. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar muni hafa óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs en hækkun skilagjaldsins muni hækka tekjur til að standa undir rekstri Endurvinnslunnar hf. vegna ósóttra skilagjalda um 10%, komi ekkert annað til.
Lögð er til framlenging á ákvæðum til bráðabirgða við lög um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða og lög um tryggingagjald sem kveður á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi á árinu 2025. Sambærilegt ákvæði hefur verið í gildi frá árinu 2013. Eftir sem áður er gert ráð fyrir óbreyttri fjármögnun frá atvinnurekendum og lífeyrissjóðum, eða 0,10%. Þá er gert ráð fyrir því að samkomulagi milli fjármála- og efnahagsráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra annars vegar og VIRK starfsendurhæfingarsjóðs hins vegar verði breytt til samræmis og að á árinu 2025 leggi ríkissjóður starfsendurhæfingarsjóði til framlag á fjárlögum.
Lagt er til að bráðabirgðaákvæði sem kveður á um útreikningsreglur vaxtabóta verði framlengt eitt ár í viðbót sem þýðir að reiknireglur og viðmiðunarfjárhæðir kerfisins verði þær sömu á árinu 2025 og voru á þessu ári. Á grundvelli þeirra forsendna er áætlað að útgjöld vegna vaxtabóta nemi 2,1 milljarði kr. á næsta ári.
Það eru lagðar til hækkanir á fjárhæðum og skerðingarmörkum barnabóta á árinu 2025. Á árinu 2024 voru gerðar ívilnandi og afturvirkar lagabreytingar á barnabótum sem tóku gildi í ársbyrjun 2024. Breytingarnar voru hluti af stuðningi ríkisstjórnarinnar vegna langtímakjarasamninga á vinnumarkaði í mars 2024. Með breytingunum voru árleg framlög til stuðnings við barnafjölskyldur í gegnum barnabótakerfið aukin um 3 milljarða kr. á yfirstandandi ári, 2024, til viðbótar við þegar lögfest áform og námu framlögin þá 19 milljörðum kr. Gert var ráð fyrir því að á árinu 2025 yrðu grunnfjárhæðir og skerðingarmörk barnabóta hækkuð til samræmis við þróun verðlags og launa og heildarútgjöld til barnabóta yrðu þá orðin 21 milljarður kr. á árinu 2025. Með því að hækka barnabætur og draga úr tekjuskerðingum munu enn fleiri foreldrar njóta stuðnings í formi barnabóta.
Lagt er til að framlengd verði heimild samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum til að nota fé ofanflóðasjóðs til greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða um eitt ár eða til 31. desember 2025. Gert er ráð fyrir að hlutur ofanflóðasjóðs í kostnaði við vinnu við næsta áfanga hættumats vegna eldgosa verði allt að 65 millj. kr. á ári, við gerð hættumats vegna vatnsflóða allt að 50 millj. kr. á ári og við gerð hættumats vegna sjávarflóða allt að 25 millj. kr. á ári. Framangreindar fjárhæðir eru þó allar með fyrirvara um árlegar fjárheimildir ofanflóðasjóðs. Ef vinna við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða frestast er hætta á að í náinni framtíð verði byggt á svæðum þar sem áhætta er talin of mikil fyrir slíka landnotkun.
Í tengslum við breytingar á örorkuhluta almannatryggingarkerfisins er lagt til að framlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2024 verði lækkað úr 0,325% í 0,107% af gjaldstofni tryggingagjalds. Þá er lagt til að á árinu 2025 renni framlagið eingöngu til lífeyrissjóða með þyngstu örorkubyrðina en þar er átt við lífeyrissjóði þar sem hlutfall örorkuskuldbindingar af framtíðarskuldbindingu er 1 prósentustigi yfir meðaltali örorkuskuldbindingar sjóðanna.
Fyrirhugaðar eru breytingar á örorkuhluta almannatryggingakerfisins sem samþykktar voru á Alþingi síðastliðið vor, sem gert er ráð fyrir að auki útgjöld ríkissjóðs um 18 milljarða kr. á ári frá og með árinu 2026. Fjármagna á breytingar að hluta með því að fella niður framlag úr ríkissjóði til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóðanna og hækka samsvarandi hlutdeild lífeyris- og slysatrygginga almannatrygginga í tryggingagjaldinu í kjölfarið.
Mikilvægt er í samvinnu við lífeyrissjóðina að samhliða breytingum á örorkukerfinu verði horft til þess að samræma viðmið til örorkumats almannatrygginga og lífeyrissjóða og varanleg lausn fundin á víxlverkunum milli almannatrygginga og greiðslna lífeyrissjóða. Síðari ár hefur þörf lífeyrissjóðanna til jöfnunar örorkubyrði minnkað auk þess sem fjárhagsstaða sjóðanna hefur almennt batnað. Því eru rök fyrir því að jöfnunarframlaginu verði fremur varið til breytinga á örorkukerfi almannatrygginga auk þess sem vægi skuldbindinga vegna örorkulífeyris í heildarskuldbindingum lífeyrissjóða hefur á síðustu árum farið lækkandi.
Tillagan leiðir til þess að framlag ríkissjóðs lækkar úr rúmum 7,1 milljarði kr. árið 2024 í um 2,5 milljarða kr. á árinu 2025 en framlagið hefur hækkað um 6 milljarða kr. frá árinu 2007 samhliða auknum tekjum ríkissjóðs af gjaldstofni tryggingagjalds. Alls hafa lífeyrissjóðir því fengið sem nemur 68 milljörðum kr. úr ríkissjóði frá árinu 2007 til ársins í ár. -
Lagt er til að heimild Náttúruhamfaratryggingar Íslands til þess að innheimta iðgjöld með 50% álagi verði rýmkuð. Jarðhræringarnar á Reykjanesi hafa haft neikvæð áhrif á gjaldþol NTÍ og fyrirséð er að þau áhrif verði langvarandi. Eigið fé stofnunarinnar hefur dregist saman og greiðslugeta hennar því versnað. Samkvæmt lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands er greiðsluskylda NTÍ í einstökum tjónsatburði 1% af samanlögðum vátryggingarfjárhæðum. Að mati stofnunarinnar er að óbreyttu útlit fyrir að greiðslugeta stofnunarinnar muni fara lækkandi á næstu árum, í hlutfalli við greiðsluskyldu hennar. Hækkun iðgjalda sé nauðsynleg til þess að tryggja að tekjur stofnunarinnar haldi í við gjöld hennar, jafnvel þótt enginn stór tjónsatburður ætti sér stað á næstu árum.
Stjórn NTÍ er heimilt, fari hrein eign stofnunarinnar niður fyrir 1‰ eða einn hluti af þúsund, af áætluðum vátryggingarfjárhæðum í lok almanaksárs, að innheimta iðgjöld með 50% álagi þar til 2‰ hlutfalli er náð. Þótt hrein eign stofnunarinnar hafi minnkað að undanförnu er hún enn hærri en 1‰ af áætluðum vátryggingarfjárhæðum.
Í frumvarpinu er lagt til að heimild stjórnar taki gildi fyrr en samkvæmt gildandi lögum, þ.e. þegar hrein eign NTÍ er hærra hlutfall áætlaðra vátryggingarfjárhæða eða 4‰ í stað 1‰, og að heimildin til innheimtu álagsins gildi lengur en samkvæmt gildandi lögum, þ.e. þar til 4‰ hlutfalli hreinnar eignar af áætluðum vátryggingarfjárhæðum er náð í stað 2‰. Miðað við núverandi fjárhagsstöðu myndi stofnunin öðlast heimild til þess að innheimta iðgjöld með 50% álagi taki breytingin gildi. Samkvæmt lögum og reglugerð um NTÍ nemur iðgjald vegna vátryggðra húseigna almennt 0,025% af brunabótamati og iðgjald vegna vátryggðs lausafjár 0,025% af þeirri fjárhæð sem tilgreind er í vátryggingarskírteini. Með breytingunni fær NTÍ heimild til að hækka iðgjald vegna húseigna og lausafjár sem nemur 0,0125% af þessu eða í 0,0375% á meðan heildareignir stofnunarinnar eru innan þeirra marka sem áður segir. Iðgjald vegna tiltekinna annarra mannvirkja sem tilgreind eru í lögum um stofnunina nemur 0,02% af áætluðu endurstofnvirði að viðbættum niðurrifskostnaði og hækkar um 0,01% eða í 0,03% nýti stofnunin sér þá heimild sem lögð er til.
Áætlað er að tekjur Náttúruhamfaratryggingar Íslands árið 2025 verði 2,7 milljörðum kr. meiri nýti stofnunin sér þá heimild sem felst í frumvarpinu. Áætlað er að þar af séu 1,4 milljarðar kr. vegna iðgjalda einstaklinga og 1,3 milljarðar kr. vegna iðgjalda lögaðila og opinberra aðila. Þessi breyting hefur ekki bein áhrif á tekjur eða afkomu ríkissjóðs. Hún kann þó að hafa óbein áhrif að því leyti að minni líkur eru á að greiðslugeta NTÍ reynist ófullnægjandi komi á ný til náttúruhamfara sem valda svipuðu eða jafnvel meira tjóni en jarðhræringarnar við Grindavík. Reynist greiðslugeta stofnunarinnar ófullnægjandi kann það að kalla á útgjöld úr ríkissjóði sem minni líkur eru á eftir því sem greiðslugetan er meiri. Nýti stofnunin þá heimild sem felst í frumvarpinu til hækkunar á þeim hluta iðgjalda sem renna til hennar má gera ráð fyrir því, sem dæmi, að gjaldið fyrir íbúð sem er vátryggð fyrir 100 millj. kr. hækki úr 25 þús. kr. á ári í 37.500 kr. á ári. Hækkunin myndi óhjákvæmilega hafa áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og eru þau áhrif áætluð 0,1%.
Í lögum um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks er kveðið á um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til fiskvinnslufyrirtækja sem greiða starfsmönnum laun meðan á tímabundinni vinnslustöðvun stendur. Lagt er til að lögin verði felld úr gildi og telst það til eins liðs í afkomubætandi ráðstöfunum stjórnvalda á árinu 2025. Samhliða er lagt til að fellt verði brott sérákvæði um starfsfólk í fiskvinnslu í lögum um atvinnuleysistryggingar. Er þannig gert ráð fyrir því að fiskvinnslufólk njóti sömu réttinda innan atvinnuleysistryggingakerfisins og aðrir þátttakendur á vinnumarkaði sem eru tímabundið án atvinnu.
Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu atriði frumvarpsins og vísað í tekjuáhrif og fjárhagsleg áhrif. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.