155. löggjafarþing — 5. fundur, 16. sept. 2024.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
2. mál
Virðulegi forseti. Ef ég skildi hv. þingmann þá er hann væntanlega fyrst og fremst að tala um þá sem geta nýtt sér þetta úrræði, ekki satt? (JPJ: Jú.) Við það að frítekjumarkið er hækkað þá hlýtur það að koma til góða þeim sem það geta nýtt sér sem þessu nemur. Það er alla vega það sem er boðað í frumvarpinu.