155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[16:11]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að hér sé fólk eitthvað að ruglast. Staðreyndin er sú að 11.500 kr. hækkun frítekjumarksins skilar flestum ellilífeyrisþegum, þ.e. öllum þeim sem eru með lífeyrisréttindi umfram 36.500 kr. á mánuði sem eru nú langflestir, ekki þessari fjárhæð á mánuði heldur 5.200 kr. á mánuði eða 3.500 kr. eftir skatt. Ég held að hugsunarvillan hjá ráðuneytinu sé svolítið svipuð því að blanda saman eða ruglast á persónuafslætti og skattleysismörkum. Þetta er eitthvað sem allir ættu að sjá sem hafa lágmarksskilning á virkni skerðingarreglna í ellilífeyriskerfinu. Kjarabótin til eftirlaunafólks sem leiðir af þessari hækkun er ekki 138.000 kr. á ári, eins og fjármálaráðuneytið heldur fram, heldur 62.000 kr. á ári eða 42.000 kr. eftir skatt. Svo að ég spyr hæstv. ráðherra: Er ríkisstjórnin (Forseti hringir.) eitthvað að ruglast hérna eða er verið að plata fólk? Skilja ráðherrar ekki (Forseti hringir.) hvernig skerðingarreglurnar virka raunverulega eða er verið að slá ryki í augu fólks? Og þetta er mjög alvarlegt. Hér er verið að bera á borð fyrir fólk (Forseti hringir.) að það sé verið að bæta kjör þess miklu meira heldur en er raunverulega verið að gera. Og þá spyr ég (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra: Ætlar ráðherra að fylgja eftir því sem í rauninni er verið að lofa fólki og hækka frítekjumarkið meira þannig að (Forseti hringir.) þessi kjarabót raunverulega skili sér fólks eða ætlar hæstv. ráðherra að biðjast afsökunar á þessum ruglingi?

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)